Valsblaðið - 01.05.2004, Page 61
Ungir Valsarar
Ég stefni að sjálfsögðu í
atnumennskuna
Elvar Freyp Arnþorsson leikur knattspyrnu með Z. flokki
Elvar Freyr Arnþórsson 16 ára gamall og
hefur æft með Val í 2 ár í fótbolta. Hann
flutti í Valshverfið 7 ára og var þá í HK
og vildi ekki skipta strax. Hann byrjaði
að æfa handbolta með Val 10 ára og
kynntist þá umhverfi Vals. Svo lá beinast
við að fara í hverfafélagið í fótbolta þar
sem allir skólafélagar voru. I suntar var
hann valinn í U17 ára landsliðið.
- Hvaða hvatningu og stuðning hef-
ur þú fengið frá foreldrum þínum í
sambandi við fótboltann, hversu mik-
ilvægur er stuðningur foreldra?
„Foreldrar mínir hafa alltaf verið já-
kvæð í garð
fótboltans.
Það skiptir máli að foreldrar styðji við
bömin sín af því annars er erfitt að ná ár-
angri. Svo er líka mjög hollt að vera í
íþróttum svo foreldrar mínir hafa alltaf
verið ánægðir með að ég sé í íþróttum."
- Hvernig gekk ykkur í sumar?
„Okkur gekk mjög vel í sumar enda
var umgjörðin alveg frábær. Hópurinn er
mjög góður en því miður voru frekar fáir
á eldra ári en yngra árið er mjög sterkur
árgangur og bætti það nánast upp. Við
byrjuðum á því að taka þátt í haustmót-
inu þar sem við vorum vaxandi og unn-
um síðasta leikinn. Svo var það Reykjar-
víkurmótið sem gekk mjög vel og
lentum við í 3. sæti. Á íslands-
mótinu gekk okkur frábærlega
og sigruðum við í B-riðlin-
unt og komumst í und-
anúrslit íslandsmóts-
ins þar sem við töp-
uðum naumlega
gegn Fjölni. í
bikarnum töp-
uðum við lfka
ntiumlega á
móti Fjölni,
en 6 okkar
leikmanna
\'oru þá í
utanlandsferð með handboltanum. Ann-
ars þegar ég horfi yfir sumarið þá var
þetta frábært sumar.“
- Segðu frá skemmtilegum atvikum
úr boltanum.
„Eftirminnilegasti sigurinn í sumar var
þegar við unnum Fylki 3-1. Fylkir skor-
aði snemma og var yfir mestan hluta
leiksins. Við sóttum og sótturn en náðum
ekki að brjóta þá niður fyrr en seint í
seinni hálfleik. Við skoruðum 3 mörk á
einhverjum 4 mínútum og tryggðum
okkur sigurinn í B-deild.“
- Áttu þér fyrirmyndir í
fótboltanum?
„Beckham hefur lengi verið í miklu
uppáhaldi og ekki síður Maradona og
Pele. Annars reyni ég bara að læra af öll-
um atvinnumönnum og góðum fótbolta.“
- Hvað þarf til að ná langt í fótbolta
eða íþróttum almennt. Hvað þarft þú
helst að bæta hjá þér sjálfum?
„Til að ná langt þarf fyrst og fremst að
æfa einn. Ég æfi mikið einn og reyni að
vera alltaf eins mikið og ég get með fót-
bolta eða einhvern bolta. Ég þarf bara að
bæta mig almennt sem knattspyrnumann.
Eins og allir. Það er alltaf hægt að bæta
sig.“
- Hvers vegna fótbolti, hefur þú æft
aðrar greinar?
„Já ég hef líka æft handbolta, frjálsar
og borðtennis. Fótbolti nær bara svo vel
til mín. Mér fannst aldrei spuming hvað
ég ætlaði að velja.“
- Hverjir eru þínir framtíðar-
draumar í fótbolta og lífinu almennt?
„Ég stefni að sjálsögðu á atvinnu-
mennskuna. Ef ég verð ekki atvinnumað-
ur þá vil ég vera góður leikmaður á ís-
landi. Svo er ég líka í skóla með fótbolt-
anum og ætla að verða eitthvað mennt-
aður líka til vara.“
- Hver stofnaði Val og hvenær?
„Séra Friðrik Friðriksson árið 1911.“