Valsblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 65
Starfið er margt
Uppbyggingarstarfft
i yngri llilununi að skila ser
Ársskýrsla körfuknattleiksdeildar árið 2004
Það varð hlutskipti meistarflokks Vals að
sitja eftir í 1. deild eftir síðasta keppnis-
tímabil. Eftir nokkuð gott gengi í deild-
inni voru það Fjölnismenn sem sigruðu
Valsmenn um sætið í úrvalsdeildinni.
Meistaraflokkur
Birgir Guðfinnsson var endurráðinn
þjálfari meistaraflokks eftir síðasta tíma-
bil. Hann lagði hins vegar skóna á hill-
una fyrir þetta tímabil og hefur ekki leik-
ið með liðinu í ár. Liðið hefur hins vegar
staðið sig vel það sem af er keppnistíma-
bili og stefnan er sett á deild hinna bestu
að ári.
Nýir leikmenn komu til liðsins nú f
sumar. Aðalsteinn Pálsson kom frá IS og
Matthías Ásgeirsson, sem búið hefur er-
lendis um skeið, flutti heim og spilar nú
með Val. Þá fékk liðið snemma á tímabil-
inu Jason Pryor aftur en hann spilaði með
Val fyrir tveimur árum. Að lokum endur-
heimtum við tvo góða Valsmenn, þá
Steingrím Ingólfsson frá Bandaríkjunum
og Kjartan Orra Sigurðsson sem sneri
aftur frá Þrótti. Allir þessir leikmenn hafa
styrkt liðið mikið og bjóðum við þá að
sjálfsögðu velkomna að Hlíðarenda.
Þó svo margir góðir leikmenn hafi
komið til okkar fyrir þetta tímabil er það
ekki alltaf svo að enginn fari frá okkur.
Ragnar Steinsson sem valinn var besti
leikmaður Valsliðsins í fyrra og verið
hefur einn okkar allra sterkasti leikmað-
ur um nokkurt skeið ákvað að skipta í
Skallagrím til að takast á við úrvalsdeild-
ina. Við vonum að Ragnari farnist vel í
Borgamesi en vitum þó jafnvel og hann
að hann kemur aftur innan skamms. Fyr-
ir mestu framfarir á síðasta tímabili fékk
Ernst Fannar Gylfason viðurkenningu.
Ný stjóm tók við í sumar, en í henni sitja:
Guðmundur Guðjónsson, formaður
Gunnar Zoega
Sveinn Zoega
Hópmynd eftir sigur í bikarúrslitaleik í 10. flokki 2004. Efri röðfrá vinstri: Ágúst Jens-
son aðstoðarþjálfari, Hólmgrímur S.Hólmgrímsson, Róbert Æ. Hrafnsson, Gústaf H.
Gústafsson, Gissur Jón Helguson, Hjalti Friðriksson, Haraldur Valdimarsson, Hörður
Helgi Hreiðarsson, Sœvaldur Bjarnason þjálfari og Katla Dögg Sœvaldsdóttir 4 ára.
Fremri röð frá vinstri: Kai Fletcher, Olafur Stefánsson, Björn A Júlíusson, Arnór
Þrastarson, Baldur Eiríksson, Páll Fannar Helgason.
IUUI « jíi
A N ra i
I
Jason Pryor í baráttu. (FKG)
Guðmundur Bjömsson
Þórey Einarsdóttir
Aðalsteinn Steindórsson
Yngri flokkar
Drengjaflokkur (fæddir 1985-1986)
var einum leik frá því að komast í úr-
slitakeppnina á síðasta ári. Mikill stíg-
andi var í liðinu og endaði tímabilið á
glæsilegum sigri á Þór Akureyri sem ein-
ungis hafði þá tapað einum leik á tíma-
bilinu. Liðið lenti í 5.-6. sæti á íslands-
mótinu. Það sem einkennir þennan flokk
er mikill fjöldi ungra leikmanna sem nú
þegar eru byrjaðir að spila með meistara-
flokki og eru þar að gera góða hluti.
11. flokkurinn (fæddir 1987 endaði í
3.-4. sæti á íslandsmótinu eftir að hafa
tapað fyrir íslandsmeisturum KR í und-
anúrslitaleik. 11. flokkurinn bætti sig
verulega á tímabilinu og náði þessi ár-
gangur sínum besta árangri á tímabilinu.
Á síðasta ári náði 10. flokkur (fæddir
1988) þeim einstaka árangri að verða
bikarmeistari. Var þar um að ræða fyrsta
titil okkar í körfuknattleik í nokkurn
tíma. Flokkurinn lenti þar að auki í öðru
sæti á íslandsmótinu og urðu Reykjavík-
urmeistarar. Þrír leikmenn liðsins voru
valdir í landslið íslands sem gerði sér lít-