Valsblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 68
Grímur Stígsson, áhugi og ástundun í
9. flokki.
Páll Fannar Helgason, mestu framfarir í
9. flokki.
Eyþór Kolbeinn Kristbjörnsson, áhugi og
ástundun í 7. flokki.
Pape Mamadou Faye, leikmaður
7. flokks.
Jón Ingi Ottósson, áhugi og ástundun í
minnibolta.
Hörður Helgi Hreiðarsson,
Einarsbikarinn 2004.
Samningun undirritaðiir IHÍIIÍ VfllS Ofl SÍdfllÍIIB SpOPt
Afhending á þjálfaraforritinu Sideline organiser sem Valur
hefur nýlega keypt fyrir þjálfara í öllum deildum. Frá
vinstri: Sveinn Stefánsson framkvæmdastjóri Vals, Biynjar
Karl Sigurðsson eigandi Sideline Organiser og Þórður
Jensson íþróttafulltrúi Vals.
Miðvikudaginn 10. mars 2004,
gengu Knaltspyrnufélagið Valur
og Sideline Sports, frá samningi
um kaup Knattspyrnufélagsins
Vals á einu fullkomnasta þjálfun-
arforriti í heimi. Forritið auðveld-
ar þjálfurum allra deilda Vals
vinnu sína. Um er að ræða notk-
un á skipulags- og greiningar-
tölvuforriti, Sideline Organizer
og Sideline Video Analyser, sem
getur auðveldað alla skipulagn-
ingu, haldið utan um æfingar, æf-
ingaáætlanir og gera æftngar
markvissari.
Aðalstjórn Vals fjármagnar þessi
kaup og er Valur fyrsta félagið á
Islandi sem býður öllum þjálfurum í
knattspyrnu-, handknattleiks- og körfu-
knattleiksdeildum félagsins upp á að-
gang að þessum forritum. Meðal annarra
notenda á forriti þessu eru knattspymu-
liðin Bolton Wanderers, Aston Villa og
Ipswich FC, NBA liðin Houston
Rockets og Memphis Grizzlies ásamt
fjölmörgum öðrum félögum og
háskólum víða um heim. Forrit
þessi voru unnin í samvinnu við
þjálfara víða um heim, sem voru
sammála um að þörf væri á heil-
steyptu tölvuforriti sem sérstak-
lega er hannað til að aðstoða
þjálfara með skipulagningu,
samskipti og leikgreiningu. Með
þessu móti er aðalstjóm Vals að
búa til umhverfi sem gerir þjálf-
umm auðveldara að vinna í,
hvetur til skipulegri vinnubragða
og eykur fagmennsku í starfi
þjálfarans. Einnig hefur þetta
mikla kosti fyrir iðkandann, að
því leyti að auðveldara verður að
fylgjast með að hverju hefur ver-
ið unnið í hverjum flokki fyrir sig og þar
af leiðandi samræmt æfingaferli iðk-
enda/flokkanna á leið þeirra til betri
íþróttamanna.
68
Valsblaðið 2004