Valsblaðið - 01.05.2004, Page 71

Valsblaðið - 01.05.2004, Page 71
Ettir Guðna Olgeirsson lega miklar, bæði eru einstaklingamir orðinr flinkari og flokkamir í samræmi við það. Fjölgað hefur í flestum flokkun- um okkar og elstu strákamir hafa undan- farin ár verið að keppa við bestu lið landsins. Og sé það haft til hliðsjónar að yngri flokkar hvers félags séu alltaf við toppinn þá bara hlýtur það að skila sér í mfl. þegar þessir strákar era komnir með aldur til þess, og það er kannski kjami málsins, að ala upp Valsara sem era alltaf í toppbaráttu í yngri flokkum, skilar sér vonandi í Völsuram í toppbaráttu í meist- araflokki. Foreldrar mættu alveg vera duglegri að mæta á leiki.“ - Hver er staða yngri flokka Vals í kötfubolta um þessar mundir? „Staða yngri flokkanna er góð í dag. Á síðasta ári eignuðumst við bikarmeistara í fyrsta skipti í mörg ár og sama lið hampaði einnig Reykjavíkurmeistaratitli, og varð síðan í 2. sæti í íslandsmótinu í fyrra. Flokkamir fyrir ofan og neðan þessa stráka hafa einnig verið að bæta sig stöðugt og strákar fæddir 1987 komust inn í úrslitakeppnina á síðasta ári í fyrsta skipti og lentu í 3.-4. sæti. Flokk- amir okkar hafa allir bætt sig mikið og eram við nálægt eða á toppnum í flestum yngri flokkum félagsins. Þama eram við að uppskera þrotlausar æfmgar undanfar- inna ára en við voram í b-c riðlum fyrir 2 áram með flest okkar lið. Núna era flestir okkar flokkar í baráttu í a-riðlum eða á milli a-b riðla. Nú varðandi yngstu flokka félagsins þá höfum við stöðugt verið að fjölga iðkendum þar 8. flokkur hefur 27 stráka og í 7. flokki og í minn- bolta eru álíka margir iðkendur. Þetta er auðvitað það sem félag eins og Valur þarf á að halda að hafa góðan fjölda í öllum flokkum og hæfa þjálfara á öllum flokkum.“ - Hver er staða körfubolta almennt meðal barna og unglinga hér á landi? „Staða körfunar á íslandi hefur senni- lega aldrei verið betri. Síðasta sumar var einstakt í íþróttasögu okkar Islendinga í yngri flokkum, yngri landslið okkar gerðu frábæra hluti á erlendum vet- tvangi. Á Norðurlandamótinu síðastliðið sumar unnum við 3 titla af 4 möguleg- um og í einu liðinu þar áttum við 3 Vals- ara í sama liðinu. Nú 16 ára lið stúlkna átti frábært sumar þar sem þær lentu í 2. sæti í Evrópukeppni B-liða í Eistlandi og lentu þar í 2. sæti á innbyrðis viðureginum við sigurliðið. Að ógleymdum frábæram árangri 16 ára liðs karla (fæddir 1988) sem sigraði Evrópukeppni B-liða sem fór fram í Englandi síðasta sumar. Þar áttum við Valsarar 2 fulltrúa sem voru félaginu sínu og þjóð til mikils sóma og er ég ákaflega stoltur af því að okkar menn hafi átt þátt í því að móta eitt sigur- sælasta sumar í sögu íslenskra yngri landsliða í íþróttum.“ - Hvaða markmið hefur Valur um upp- byggingu kvennakörfubolta? „Það er ein stelpa að æfa hjá okkur í Val. Þessi stúlka hefur verið alveg ótrú- lega dugleg undanfarin ár. Og hún hefur bætt sig mjög mikið og stendur jafnfætis mörgum af strákunum, Hún er búin að æfa síðan í 9. bekk er í 1. bekk í fram- haldsskóla en þá var bróðir hennar að æfa líka, hann er horfmn á braut en hún held- ur ótrauð áfram, og sem merki um dugn- að hennar þá fór hún yfir í KR á síðasta ári, en langaði bara ekki að æfa þar sem stelpumar vora ekki eins „góðar“ og strákamir og einnig fannst henni bara meira gaman að æfa í Val og kom hún því auðvitað aftur. Þetta á auðvitað að virka sem hvati á okkur að stofna kvennakörfu í Val. Eg er sannfærður um að það á eftir að gerast í allra nánustu framtíð. Það er hins vegar auðvelt að segja en erfiðara í framkvæmd. Við höfum ekki haft nægi- lega marga þjálfara í félaginu til þess að þetta hafi verið möguleiki og einnig þá er plássleysi áþreifanlegt eins og staðan er í dag. En með nýju húsi og vonandi fleiri hæfum þjálfuram þá munum við vonandi stofna kvennakörfu í Val og vonandi vinna hana á sama stall og hún var. Ég er sannfærður um að það er grundvöllur fyr- ir kvennakörfu og með metnaði og fóm- um má ná þessu fram, vonandi sem allra allra fyrst með tilkomu nýrra íþrótta- mannvirkja að Hlíðarenda." - Hvaða skilaboð viltu senda krökkum sem eru að stunda íþróttir? „Skilaboð til iðkenda í Val eru þau að vera áfram dugleg að æfa og stunda íþróttir því maður lærir svo ótrúlega margt í íþróttum. Maður lærir að taka sigri og ósigri, takast á við mótlæti og sigrast á því og maður fer í sæluvímu ef vel gengur. Maður eignast svo marga vini og félaga í gegnum fþróttir og ef maður leggur sig alltaf 100% fram þá er uppskeran eftir því. Einnig hvet ég alla, bæði þjálfara sem leikmenn til þess að setja sér markmið, hvað þeir vilji fá út úr íþróttum, það þarf ekki að vera að vinna íslandsmeistaratitil, það gæti bara falið í sér að mæta alltaf á æfingar og leggja sig 100% fram á öllum æfingum sem við- komandi mætir á. Síðan er það svo mikil sælutilfinning þegar maður kemst svo loks á þennan stað og sér að maður hefur náð settum markmiðum, það er ótrúlega skemmtileg tilfinning hvort sem um Is- landsmeistaratitil eða mætingu á fyrstu æfingu er að ræða.“ Afram kaifa. Valsblaðið 2003 71

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.