Valsblaðið - 01.05.2004, Page 82
Holmgpímup Snær Holmgpímsson leikur körfubolla með 11. flokki
Hólmgrímur Snær er 16 ára gamall og
byrjaði að æfa með Val í 9. ilokki. „Það
var nú þannig að nokkrir vinir mínir voru
að æfa hjá Val og voru þeir eitthvað að
mana mig að mæta á æfingu með þeim
og gerði eg það einu sinni og var þá
Agúst Björgvins að þjálfa ásamt Sæba
og var sú æfing frekar „brjáluð”, síðan
byrjaði ég að æfa stuttu seinna.“
- Hvaða hvatningu og stuðning hef-
ur þú fengið frá foreldrum þínum í
íþróttum?
„Ég hef fengið alveg nokkuð mikla
hvatningu frá þeim, alla vega það sem
þau vita unr íþróttir eða körfu. Stuðn-
ingur foreldra skiptir auðvitað alltaf
einhverju máli.“
- Hvernig gengur ykkur í
vetur í körfunni?
„Okkur gengur bara vel
erum í A riðli, í fyrra fórum
við náttúrulega á Reykjavrk-
urmótið, Bikarmeistara-
mótið og unnum við þau
bæði en lentum í öðru sæti
á íslandsmótinu sem var
nokkuð fúlt því það hefði
getað farið öðruvísi en
þetta var samt allt í
lagi. Hópurinn er mjög
fínn.“
- Segðu frá skemmtilegum atvikum
úr boltanum.
„Það var líklegast þegar við vorum
bikarameistarar í 10. flokki Það var dá-
lítið nett. Ferðin til Spánar var náttúru-
lega geðveik nema eiginlega allt liðið
brann á ströndinni."
- Áttu þér fyrirmyndir í íþróttum?
„Fyrirmynd.... það er hann Kobe
Bryant í Lakers."
- Hvað þarf til að ná langt í íþrótt-
um?
Það er pottþétt metnaðurinn og það að
vilja, annars nærðu ekkert langt í neinni
íþrótt held ég nú bara. Ég þyrfti nú bara
að bæta sitt lítið af hverju."
- Af hverju körfubolti?
„Körfubolti er bara mjög
skemmtilegur, æfði íshokkí í smá
tíma og fótbolta en samt ekkert
að viti eins og körfuna."
- Markmið í körfunni?
„I körfunni það þarf
bara að koma í ljós, auð-
vitað vill maður ná sem
lengst. Bara klára að
læra og ganga vel í
lífinu."
- Hver stofn-
aði Val • og
hvenær?
„Það var
héma Friðrik
Friðriksson
11. maí árið
1911.“
Iðnaðarryksugur
/ 1 Án og með
/ ')l tengli fyrir j
Fyrlr blautt og þurrt
Fjöldi aukahluta
SKEIFAN 3E-F - 108 REYKJAVIK
SÍMI 581 2333 / 581 2415
RAFVER@RAFVER.IS • WWW.RAFVER.IS
MSXe b3b II
ák A
Slipar - sagaf
raspar - sker.
RAFVER HF
Verkfæri fyrlr alla
SKEIFAN 3E-F - 108 REYKJAVlt
SlMI 581 2333 / 581 2415
RAFVERSRAFVER.IS - WWW.RAFVEP
ú