Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 67
Eitip Þorgpím Þáinsson
IfílmmmWfhnm
h íú iiiMmi' w')}!1 í.f'
wuir '\twwm
tí/tíL- WMMffl
Islandsmeistarar Vals í 2. flokki kvenna árið 1997. Frá vinstri að ofan: Aðalheiður, Heiður Baldursdóttii; Guðrún Jónsdóttir, Lilja
Hauksdóttir, Eva Benediktsdóttir, Eygló Jónsdóttir, Eva Þórðardóttir, Arna Grímsdóttir, Hafrún Kristjánsdóttir, Júlíana Þórðardóttir.
Fjórar fremstu; Sigurlaug Rúnarsdóttir, Þóra Helgadóttir, Bylgja Ægisdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir.
sjálft að með þær innanborðs, auk þeirra
sem eru meiddar í dag, værum við gífur-
lega öflugar, líklega langbesta liðið. Við
erum allar sammála því að við mættum
spjara okkur aðeins betur í deildinni það
sem af er. Fjórir lykilmenn hafa verið
meiddir upp á síðkastið þannig að við
höfum verið nokkuð brothættar auk þess
sem Eivor fyrirliði hefur lítið getað beitt
sér sökum veikinda."
— Hefur aldrei hvarflað að þér að
skipta um lið eins og sumar hafa gert?
„Ég er svo mikill Valsari í mér að ég
gæti ekki hugsað mér að spila á móti Val.
Svo eru húsverðimir, Baldur og Ella
Beta, orðin svo stór hluti af daglegu lífs-
mynstri mínu að ég fengi fráhvarfsein-
kenni ef ég hitti þau ekki lengi. Þau eru
æðisleg."
— Hvaða lið verður íslandsmeistari?
„Markmið okkar er að komast í fjög-
urra liða úrslit og ef við náum að tefla
fram okkar sterkasta liði getur allt gerst.
IBV er þó augljóslega með sterkasta lið-
ið því þar eru útlendingar keyptir í kipp-
um og valinn maður í hverju rúmi.
Breiddin hjá Haukum er ágæt en við ætl-
um okkur að blanda okkur í baráttuna.“
— Ertu sátt við þá þjálfun sem þú hef-
ur fengið í gegnum tíðina hjá Val?
,,Já, ég hef alltaf fengið öfluga þjálf-
un og aldrei staðið á þjálfurum að veita
séræfingar. Michael, Boris, Óskar, Gústi
vom alltaf tilbúnir ef við vildum og
núna era Guðríður Guðjóns þjálfari og
Óskar Bjarni alltaf klár ef eftir því er
óskað. Ég er líka mjög ánægð með Val
sem félag því hér er fjöldi fólks að
leggja sig fram í sjálfboðavinnu og
framtíðin er að mínu mati björt í öllum
greinum. Valur er og verður alltaf stór-
veldi.“
Flugeldasala Vals
Flugeldasala Vals verður í gamla félagsheimilinu og hvetjwn við Valsmenn til að kaupa flugeldana að Hlíðarenda.
Það er mjög hentugt að mœta í hádeginu á gamlársdag ogfylgjast með útnefningu á Iþróttamanni Vals 2002, fá sér kaffisopa,
hoifa á „gamlingjana “ spilafótbolta í íþróttahúsinu og versla síðan flugelda til aðfagna áramótunum.
Valsbiaðið 2002
67