Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 49
Eftir Þorgpím Þráinsson
Meistaraflokkur Vals í körfubolta keppnistímabilið 2002-2003. Aftari röð frá vinstri: Bergur Emilsson þjálfari, Ragnar Steinsson,
Hinrik Gunnarsson, Laverne Smith Jr., Bjarki Gústafsson. Fremri röð frá vinstri: Guðbjörn Sigurðsson, Gylfi Geirsson, Agúst
Jensson, Högni Egilsson og Olafur Már Ægisson. Sköinmu eftir að myndin var tekin var Bergur Emilsson þjálfari leystur frá
störfum en Agúst S. Björgvinsson ráðinn þjálfari.
sigrum og titlum en ef slíkt er ekki til
staðar verðum við að vera fruntkvöðlar á
því sviði, sýna karakter. Valur hefur verið
jójó-lið síðustu árin en við höfum alla
burði til að breyta því. Mér er það mikið
metnaðarmál að skilja við Val í góðri
stöðu því ég mun halda til Danmerkur í
júní 2003 og hefja nám í tæknifræði. Ég
hef lokið rafvirkjanámi og vil mennta mig
enn frekar á því sviði. Ef ég stekk síðan á
mastersnám, útskrifast sem verkfræðing-
ur, kem ég ekki heim næstu sex árin.“
— Ætlarðu að spila samhliða nám-
inu?
„Ef mér gengur vel í vetur og statistik
mín í leikjunum er góð hef ég fullan hug
á því. En sterk lið hafa síður áhuga á
leikmönnum sem eru í slökum liðum og
nteð slæma statistik. Þetta veltur því
töluvert á minni frammistöðu."
— Hvað finnst þér um boltann
hérna heima?
„Eins og flestum körfuboltamönnum
finnst mér við fá allt of litla athygli í fjöl-
miðlunt ef við berum okkur til dæmis
saman við þá umfjöllun sem handboltinn
fær. Handbolti er jaðaríþróttagrein á
heimsvísu og Bandaríkjamenn sem koma
hingað og sjá handbolta vita ekki hvað er
í gangi, hrista hausinn. Tölur frá ISI sýna
að mun fleiri stunda körfubolta en hand-
bolta á íslandi og þess vegna viljum við
að íþróttinni sé gerð betri skil. Vissulega
er íslenska landsliðið með betri landslið-
um í heimi en útbreiðsla íþróttarinnar er
lítil. Núna erunt við að eignast alvöruat-
vinnumenn í körfubolta, eins og Jón Am-
ór Stefánsson og Loga Gunnarsson en
slíkt gæti aukið umljöllunina til ntuna.
Jón Amór er að spila í yfir 30 mínútur í
leik í Bundesligunni sem er frábær ár-
angur og var að auki valinn leikmaður
mánaðarins um daginn. Boltinn heima er
hvorki betri né verri en áður en ég hef
hins vegar fulla trú á því að við munum
eignast fleiri leikmenn eins og Jón Amór
og Loga þegar fram líða stundir.“
Bjarki hefur aldrei þjálfað yngri flokka
Vals, einfaldlega vegna þess að hann hef-
ur ekki áhuga á þjálfun. „Ég hef hinsveg-
ar fylgst vel með Ágústi S. Björgvinssyni
og þeim kraftaverkum sem hann er að
gera með yngri flokkana í körfubolta hjá
Val. Það er ekki hægt að finna betri mann
en hann í starfið. Satt að segja vildi ég
hafa hann sem aðstoðarþjálfara meistara-
flokks því Gústi er hafsjór af fróðleik,
þótt hann sé ungur að ámm, og við þurf-
um slíkan mann til að segja okkur til.
Hann býr yfir gríðarlegri þekkingu, er
vakinn og sofinn í þjálfarastarfmu."
Bjarki lék einnig knattspyrnu á sínum
yngri árum og var landsliðsmaður í sigl-
ingum. Hann segist hafa endað á hinum
eina rétta stað í boltanum. Um þessar
mundir er Bjarki stigahæstur í meistara-
flokki á eftir Kananum og Valsmenn
treysta á að hann og félagar hans haldi
merki Vals á lofti í körfunni á tímabilinu.
Fall er ekki á dagskrá!
Munið getraunanúmer Vals - 101
Valsblaðið 2002
49