Valsblaðið - 01.05.2002, Síða 5
leiksoppur þess sem hún ræður ekki við
sjálf. Með jólaboðskapnum séu flutt
skilaboð um það að almætti Guðs, sem
öllu ræður sé komið á jörðina og snerti
líf fólks á jörðu til þess að styðja og
hjálpa svo manneskjumar á jörðu geti
eignast þá lífssýn þar sem bjartsýni og
gleði ríkja, hvernig svo sem aðstæður
lífsins eru.
Það er sjálfsagt mál á jólum að óska
gleði. Þá tölum við um það, leyfum til-
fmningum að vera bljúgum, hleypum
jafnvel viðkvæmninni að. Þá nær oft trú-
in, tengslin við almætti Guðs því að kalla
fram það dýrmæta og góða, það eina sem
getur gert gleðina varanlega, til hvers-
dagsnotkunar. Eftir að Guð sendi frelsara
í heiminn, þá er það mögulegt, með því
að rækja trúna, vera sannur og trúr, ein-
lægur og heill. Þar er ekki lítið í húfí,
öllu eftir að sækjast. Nokkuð sem við
ættum að stunda allan annan tíma jafnt,
láta ekki vera að baki þegar jólahátíðinni
lýkur, heldur rækja áfram hvern dag, til
hversdagsnotkunar. Það er góður lífshátt-
ur, sem sr. Friðrik talar um og segir:
„Að jólagleði vor mætti breiða ljóma
sinn yfir alla daga vora, mætti lýsa út frá
oss dag hvern, hvernig sem tímamir og
ástandið breytist. Að vér mættum bera
þessa gleði, sem vér eigum í raunveru-
leika, einnig inn í hið nýja, komandi ár
með öllum þess dimmu skýjum og
skuggum, sem grúfa ógnandi yfir inn-
ganginum að því. Svo að vér mættum
segja við oss sjálfa hvem dag þegar vér
rísum á fætur: Vertu óhræddur, þér er í
dag frelsari fæddur, frelsari, sem gefið er
allt vald á himni og jörðu, frelsari, sem
er í gær og í dag hinn sami og að eilífu,
og vill því og getur staðið við heit sitt:
Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda
veraldarinnar, frelsari, sem var og er og
kemur! Ef vér göngum út í erfiði dags-
ins, strit og vonbrigði, freistingar og bar-
áttu með þetta volduga heróp jólanna:
Mér er í dag frelsari fæddur,... þá göng-
um vér inn til nýrrar jólagleði dag hvem
og sigrandi fyrir kraft hans, sigrandi allt,
sem mætir oss“.
Glatt og gott Valsfólk. Látum þá boðun
verða okkur að lífshætti. Það er góður
grundvöllur. Guð gefi okkur og fjöl-
skyldum okkar þá gleði á jólum, sem
varir í lífinu öllu.
Valsblaöiö • 54. árgangur 2002
Útgefandi: Knattspyrnufélagið Valur, Hlíðarenda við Laufásveg • Ritstjóri: Þorgrímur Þráinsson • Ritnefnd: Þorgrímur Þráinsson, Haukur R. Magnússon og
Þorsteinn Ólafs • Auglýsingar: Jón Grétar Jónsson og Sveinn Stefánsson • Ljósmyndir: Þorsteinn Ólafs og Þorgrímur Þráinsson • Umbrot, prentun og bókband:
ísafoldarprentsmiðja ehf. • Þorsteini Ólafs eru færðar sérstakar þakkir fyrir að lána myndir og góðan prófarkarlestur.
Efnisyfirlit
4 Hugvekja
36 Fyrirliðinn orðinn formaður
Grímur Sœmundsen, einn
sigursœlasti knattspyrnumaður
Vals, hefur tekið við sem
formaður félagsins.
12 Hliðarendi til framtíðar
Samningar við Reykjavíkurborg,
um framtíðarskipulag að
Hlíðarenda, eru í höfn. Hvað
þýðir það fyrir félagið okkar?
20 Valur á toppnum
Valur er sigursœlasta félag
landsins íþremur vinsœlustu
boltagreinunum.
18 Handboltahugsuðurinn
Olafur Stefánsson er ein af
skœrustu stjörnum Vals og
þjóðarinnar. Hvernig var hann
sem unglingur?
30 Hvað gera strákarnir?
Hvað segir Bjössi fyrirliði í
fótboltanum um baráttuna meðal
þeirra bestu sumarið 2003?
66Alltaf ungar og efnilegar?
Hafrún Kristjánsdóttir hefur trú
á handboltastelpunum þrátt fyrir
mikil ajföll og meiðsli.
48 Finna þeir taktinn?
Bjarki er að leika sitt síðasta
tímabil í kötfunni. Nœr liðið
flugi?
44 Valur til fyrirmyndar
Þorgrímur Þráinsson lœtur
hugann reika um Val sem
fyrirmyndarfélag.
Valsblaðið 2002
5