Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 35

Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 35
Ettir Hauk R. Magnússon Geir Sveinsson ásamt ásamt valinkunnum leikmönnum meistaraflokka í handbolta og yngstu iðkendunum semfengu viðurkenningu á uppskeruhátíð handknattleiksdeildar. framhaldi af því sem við gerðum síðasta vetur. Við verðum þá að spóla aðeins til baka og spyrja okkur hvort það sem við gerðum í fyrra hafi verið raunhæft þegar lagt var af stað í mótið. Að sumu leyti var það, að öðru leyti ekki. Við náðum því út úr okkur sem til var ætlast og kannski rúmlega það. Það er ljóst að það hafa átt sér stað ákveðnar breytingar. Við misstum tvo mikilvæga menn og annar þeirra spilaði gífurlega stórt hlutverk. Það tekur auðvitað heillangan tíma að fylla þetta skarð. Við megum ekki gleyma því að í byrjunarliðinu í dag eru tveir menn sem aldrei hafa spilað í 1. deild. Út frá þessum þáttum finnst mér kannski full mikið farið fram á og ekki sjálfsagt að titill eigi að vera krafan. Það væri kannski ekki óeðlilegt ef það gerð- ist en það má bara svo lítið út af bregða. Við erum með mjög ungt lið og frábæran markvörð sem er stór hluti af liðinu." — Hefur þú þurft að gera einhverjar taktískar breytingar frá síðasta tíma- bili? „Heilmiklar, fyrst og fremst varnarleg- ar. Valur er þekkt fyrir að spila 6-0 vöm og hefur gert það í fjölda ára en spilar nú 3-2-1, frekar „aggresívan“ vamarleik. Það er fyrst og fremst út af þeim mann- skap sem ég hef í höndunum. Eg hef þurft að breyta heilmiklu og hvað varnar- leikinn varðar er um algjöra strúktúr- breytingu að ræða.“ — Sigfús Sigurðsson tók miklum framförum undir þinni handleiðslu, sérðu hina ungu línumenn okkar í dag ná eins langt? „Ég hef heilmikla trú á þeim. Við verðum bara að taka tillit til þess að þeir em báðir á sínu fyrsta ári. Ragnar Ægis- son getur leikið lykilhlutverk í vamarleik og orðið góður sóknarmaður. Brendan Þorvaldsson hefur komið mjög vel út, staðið sig frábærlega í vöm en hefur fengið aðeins minni tækifæri en Raggi í sókn. Mér finnst framtíð þeirra björt.“ — Hvað hefði mátt fara betur í úrslit- unum í fyrra? „Við náðum þeim frábæra árangri að vinna sex leiki í röð í úrslitakeppninni sem ég held að ekkert lið hafi náð að gera. En við náðum því einnig að tapa þremur leikjum í röð. Fyrir mig sem þjálfara var það langerfiðast, ekki það að við skyldum tapa íslandsmótinu heldur frekar það að hafa tapað þrisvar í röð og að hafa ekki náð að snúa spilinu við. Við Ágúst Jóhannsson aðstoðarþjálfari minn ræddum það mikið eftir á og það var ekkert stórvægilegt sem við fundum út að hefði mátt gera öðruvísi. Við fengum mjög mikið út úr mannskapnum." — Valur hefur ekki orðið deildar- meistari í 7 ár, er þér það mikið kappsmál að vinna deildarmeistaratit- ilinn? „Jú, ég neita því ekki. Ég er mjög óhress með þá umræðu sem hefur verið í gangi undanfarið. Mér finnst alveg rétt að deildarkeppnin sé skoðuð en mér finnst óþarfi að staglast á því að leikir séu óþarf- ir og hafi enga þýðingu. Ég skil ekki svo- leiðis röksemdafærslur. Mér hefur stund- um fundist það vanta að þeir sem eru að setja fram þessa gagnrýni reyni að setja sig í spor þessara leikmanna og þjálfara sem eru að berjast um þetta. Sportið gengur út á það að vinna leiki, þannig að tala um að eitthvað sé ekki þýðingarmikið og halda það að menn komi bara í mánuð til þess að spila handbolta í úrslitakeppn- inni, get ég ekki verið sammála. Fyrir mig sem þjálfara og fyrir leikmenn skiptir hver einasti leikur máli. Að standa uppi sem sigurvegari eftir 26 leiki tel ég vera mjög gott afrek. Síðan getum við rökrætt það hvort áhorfendur séu nægilega marg- ir, hvort getumunur liðanna sé of mikill eða hvort það sé sanngjamt að þú fáir að verða íslandsmeistari eftir fjórar vikur í úrslitakeppni.“ — Á deildarmeistaratitillinn að hafa meira vægi og á að breyta núverandi fyrirkomulagi? „Það eru kannski ýmsar lausnir til á því. í fyrsta lagi er ekkert hægt að gera á einu ári, við getum ekki ákveðið í vor að við ætlum að gera eitthvað næsta háust. Sú róttæka ákvörðun að segjast ætla að fækka niður í 8 eða 10 lið þarf einhvem aðdraganda. Það sem gæti gerst er að hafa 10 lið og síðan úrslitakeppni með 8 liðum eða við gætum verið eingöngu með átta efstu liðin og spilað fjórfalda umferð. Það tekur heilt ár sennilega að búa þetta til. Við þurfum líka að spyrja okkur þeirrar spumingar hvort úrslitakeppnin sé eins óviðjafnanleg og við tölum um. Gott dæmi um það er úrslitakeppnin í fyrra þar sem var ekki einu sinni uppselt í fyrsta úr- slitaleiknum við KA.“ — Þetta er einstakur hópur sem þú ert með í höndunum, finnst þér ekki að Valsmenn mættu sýna þeim meiri áhuga? „Ég neita því ekkert. Það er sorglegt að í einu skiptin sem við fáum 400 til 500 manns í húsið er þegar við dreifum 1000 boðsmiðum í skólana hérna í kring og annað. Það er ekki hægt að segja að það sé stór kjarni sem komi hérna á leik- ina en þessi litli kjarni sem kemur er al- veg frábær og hefur stutt okkur alveg dyggilega. Við erum sérstaklega þakklát- ir fyrir þeirra stuðning.“ Valsblaðið 2002 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.