Valsblaðið - 01.05.2002, Page 38
Grímur Sæmundsen er nýkjörinn formaður Vals. Hinn sigursæli bakvörður segir að fjölgun iðkenda
sé meginverkefni fálagsins á næstunni og að styrkja þurfi ímynd félagsins sem afreksfélags
í október síðastliðnum tók Grímur Sæ-
mundsen við formennsku í Val af Reyni
Vigni sem hafði gegnt formennsku í átta
ár. Er engum blöðum um það að fletta,
hve mikil gæfa það er fyrir félagið að fá
svo reyndan og hæfan mann í starfið.
Grímur hafði stjórnað knattspyrnudeild-
inni frá árinu 1999 og á að baki setu í
stjórnum knattspyrnudeildar og körfu-
knattleiksdeildar á árum áður. Grímur
var aðeins 6 ára gamall þegar hann hóf
knattspymuiðkun hjá Val, og handknatt-
leik stundaði hann samhliða upp í 3.
flokk. Hann lék rétt rúmlega 300 meist-
araflokksleiki fyrir Val í knattspyrnu,
síðustu árin sem fyrirliði. Hann var jafn-
an í mjög sigursælu liði og vann til fjög-
urra íslandsmeistaratitla, þriggja bikar-
meistaratitla og tók þátt í fjölmörgum
leikjum með Val í Evrópukeppni á árun-
um 1974 til 1985.
„Lárus Loftsson var þjálfari minn í
gegnum flesta yngri flokkana og hafði
mikil áhrif á mótun mína sem knatt-
spyrnumanns. Júrí Illitchev, þjálfari
meistaraflokks, setti mig í stöðu vinstri
bakvarðar, þegar ég hóf að leika með
meistaraflokki, en ég hafði fram að því
alltaf spilað sem miðvörður. Eg hreyfði
mig ekki þaðan þau 12 ár, sem ég spilaði
með meistaraflokki Vals. Ég upplifði
margar ógleymanlegar gleðistundir á
þessum tíma og er mjög þakklátur fyrir
það að hafa fengið að vera hluti af þessu
tímabili í sögu Vals. Júrí kenndi mér allt,
sem ég kann í knattspymufræðum og Ian
Ross kenndi mér hvað hægt væri að gera
með samstilltum hópi, hvemig þú getur
gert samheldni og baráttuanda að 12.
liðsmanninum."
Á þeim ámm sem Grímur lék með Val
vann félagið fleiri afrek á keppnisvellin-
um, samanlagt í öllum greinum en nokk-
urt annað félag. „Það var sterk og já-
kvæð upplifun að vera í kringum félagið
á þessum tíma. Við vorum bestir, við
vorum vinsælir, Valur var vinsælt félag
sem naut mikillar virðingar og aðrir báru
sig saman við. Eftir að við urðum bikar-
meistarar karla í knattspyrnu þrisvar í
röð, 1990-’92, fór að halla undan fæti og
ef við hefðum ekki haft frábært lið í
handboltanum á síðasta áratug til að
halda uppi merki Vals, hefði félagið fall-
ið enn meira í skugga."
— Þú stjórnaðir knattspyrnudeildinni
á miklu erfiðleikaskciði, hvernig kem-
ur sú reynsla til með að nýtast þér?
„Ég held að hún muni nýtast mér mjög
vel. Ég hef starfað við félagsstörf á mjög
margvíslegum vettvangi. Þegar ég kom að
stjóm knattspymudeildar fyrir þremur
ámm leist mér ekki alveg á blikuna. Allt
starf hér var mjög brotakennt og í knatt-
spymunni gengu bama- og unglinga-
flokkamir eiginlega sjálfala, áhugasamir
foreldrar og einstakir þjálfarar héldu starfi
gangandi og það var lítið innra skipulag á
stjómun deildarinnar. Það hafði verið við-
varandi vandamál, hvað það var alltaf
erfitt að fá fólk til starfa og hélst það í
hendur við veika innviði.
Mér tókst að fá til liðs við mig í
38
Valsblaðið 2002