Valsblaðið - 01.05.2002, Page 73
Hvað finnst móðurinni, íþróttamanni ársins 1964, um dætur sínar?
Það er ekki á hverjum degi sem gallharð-
ir Framarar skipta yfir í Val en um þessar
mundir eru systurnar Guðríður, Díana og
Hafdís með meistaraflokki í handbolta.
Þær eru landskunnar fyrir frábæra hand-
boltasnilli um „áratugaskeið" en Gurrý,
sem þjálfar meistaraflokk, hefur líklega
dregið systur sínar með sér niður að
Hlíðarenda. Eins og flestum Valsmönn-
um er kunnugt er Sigríður Sigurðardóttir
móðir stúlknanna en hún var kjörin
íþróttamaður . ársins árið 1964, fyrst
kvenna á íslandi. Sigríður gerði garðinn
frægan með Val í ,,den-tid“ en Guðjón
eiginmaður hennar lék hins vegar með
Fram. Hvað ætli móðurinni finnist um
þessa óvæntu Fram-flutninga að Hlíðar-
enda.
„Mér þykir þetta mjög skemmtilegt.
Stelpunum hefur kannski fundist þær
skulda mér það að spila með Val, eins og
mamman,“ segir hún í gríni. „Gurrý
byrjaði reyndar með IR á sínum tíma en
hinar fóru í Fram sökum þess að við
bjuggum í hverfinu!!
Ég reyni vitanlega að sjá flesta leiki
með stelpunum en það hafa mikil meiðsl
hrjáð Valsliðið. Annars finnst mér íslensk
kvennalið ekki ráða almennilega við
þennan hraða sem er í leikjunum, lætin
eru allt of mikil. Leikimir þróast orðið
þannig að það lið sem gerir færri vitleys-
ur stendur uppi sem sigurvegari. Það er af
sem áður var. Og svo vantar Val óneitan-
lega skyttu en um leið og stelpumar stíga
upp úr meiðslum er liðið til alls líklegt."
Framsystumar í Valsbúningi. Díana,
Guðríður og Hafdís.
errea
SÉRHANNAÐURFATNAÐUR
FYRIR ÍÞRÓTTAFÉLÖG
primo
■ tyntofrfremít
Igppm
-ImqðaAt ketwi-
Landsliösbuningur Islands
i knattspyrnu er nú fáanlegur
í öllum stæröum.
Fæ;>t i iþfottaverslunum um itiu aui