Valsblaðið - 01.05.2002, Blaðsíða 41
Grímur hœtti störfum sem formaður knattspymudeildar á haustdögum. Hann var á
uppskeruhátíð deildarinnar og afhenti Irisi Andrésdóttur viðurkenningu sem leikmaður
meistaraflokks og Málfríði Ernu Sigurðardóttur verðlaun en hún var kjörin sú efnileg-
asta. (Mynd ÞÓ)
að gera veg félagsins sem mestan.
Ég er talsmaður þess, að við skoðum
vandlega, hvort ávinningur sé í því fólg-
inn fyrir Val, að við brjótum upp það
hefðbundna form, sem hefur verið á
stjómskipulagi félagsins. Valur skiptist
nú í þrjár deildir eftir íþróttagreinum. En
það em tvær aðrar breytur til staðar, ann-
ars vegar aldur og hins vegar kyn
iðkandans. Er nauðsynlegt að byrja á því
að skipta starfsemi félagsins upp eftir
íþróttagreinum og síðan innan greinar-
innar eftir aldri og kyni? Af hverju get-
um við ekki brotið þetta upp og farið
aðrar leiðir, t.d. að líta á aldur sem
grunnbreytuna? Þá mundum við byrja á
því að skipta starfsemi félagsins í bama-
og unglingastarf annars vegar og afreks-
starf hins vegar. Það eru sumir sem
segja, að slík skipting eigi betur við þær
þjóðfélagsaðstæður, sem við búum nú
við. Þetta þarf að skoða. Aðalstjóm hefur
skipað nefnd undir stjórn Svala Björg-
vinssonar, sem á að skila tillögum um
stefnumótun félagsins, þar sem m.a.
þessir þættir verða skoðaðir”
— Aðstaða áhorfenda hefur verið
vandamál, eru úrbætur í augsýn?
„Aðstöðuleysið er yfirþyrmandi héma
hjá okkur. Þessi mannvirki em alls ekki í
samræmi við þær kröfur sem gerðar eru
til slíkra mannvirkja nú. Það er einmitt
stærsti hluti framkvæmdaáætlunar,sem
við vinnum nú að ásamt Reykjavíkur-
borg, að breyta þessu. Til þess að geta
staðið fyrir öflugri starfsemi þarf góða
aðstöðu og til þess að nýta góða aðstöðu
þarf öfluga starfsemi. Nú erum við að
stórbæta aðstöðuna og samhliða því
hljótum við að fara í aðgerðir til þess að
auka iðkendafjöldann. Þetta hangir allt
sarnan."
— Ertu ánægður með rekstrarform
félagsins?
„Eins og ég nefndi áður, er ég áhuga-
samur um að það sé skoðað, hvort rétt sé
að gera breytingar þar á. Það hefur mikið
unnist á með stofnun fjárreiðunefndar,
sem sér til þess, að það verður ekki
stofnað til neinna fjárhagslegra skuld-
bindinga Vals, nema með samþykki aðal-
stjómar. Það er okkar fyrsta verkefni á
undan öllum öðrum verkefnum að
tryggja, að félaginu verði ekki aftur
steypt í skuldir.
Deildafyrirkomulagið var sett upp um
miðja síðustu öld, vegna þess að það
hentaði þá. Hver er að segja að þetta
fyrirkomulag henti nú? Ég tel, að Valur
eigi að vera eitt félag, með eina stjórn
og sameiginlegan fjárhag í rekstrarlegu
tilliti eins og fyrirtæki. Frá rekstrarlegu
sjónarmiði mætti sjá Val fyrir sér sem
e.k. þjónustufyrirtæki á sviði íþrótta
fyrir Reykvíkinga. Valur getur síðan
verið með fjölþætta íþrótta- og félags-
starfsemi, sem skipt væri með einhverj-
um hætti eftir þeim grunnbreytum sem
ég nefndi áður. Ég undirstrika að þetta
eru vangaveltur og allar skipulagsbreyt-
ingar krefjast mikillar undirbúnings-
vinnu og þurfa að gerast í góðri sátt við
alla Valsmenn. Vinna stefnumótunar-
nefndar mun nýtast okkur vel til undir-
búnings frjórrar umræðu innan félagsins
um þetta efni.
Ef okkur tekst vel til við uppbyggingu
á Hlíðarenda og útbreiðslustarfið, erum
við komin með Val á rétta braut. Fjölgun
iðkenda er meginverkefni í ljósi þess að
uppbygging er tryggð. Náist árangur á
því sviði, er framtíð Vals mjög björt
bæði á afrekssviðinu í öllum greinum og
á hinum félagslega vettvangi."
Formaður Vals lék með 3. flokki 1971 en í þeim hópi var kjarni Valsmanna sem átti
eftir að ná langt í boltanum. Standandi frá vinstri: Lárus Loftsson þjálfari, Einar
Kjartansson, Friðgeir Kristinsson, Gunnar Friðgeirsson, Ólafur Magnússon, Kristinn
Björnsson, Sverrir Ögmundsson, Hörður Hákonarson og Guðlaugur Björgvinsson
aðstoðarþjálfari. Sitjandi frá vinstri: Hafliði Loftsson, Steindór Gunnarsson, Hannes
Lárusson, Birgir Jónsson, Grímur Sœmundsen og Guðmundur Björgvinsson.
Valsblaðið 2002
41