Valsblaðið - 01.05.2002, Page 19
Ettip Óskan Bjarna Óskansson
,,Handboltahugsuðiirínn“ lék með hinum ósigrandi '73 árgangi sem vann alla sína
leiki frá 5. og upp í 2. flokk þegar drengirnir voru á eldra ári. Olíklegt að slíkt verði
endurtekið! Ekki eitt tap á eldra ári enda ágcetur mannskapur og sami þjálfari í 8 ár!!
Myndin var tekin eftir að bikarinn var í höfn í 2. flokki. Aftari röðfrá vinstri: Theodór
Guðfinnson þjálfari, Olafur Stefánsson, Theodór H. Valsson, Dagur Sigurðsson, Einar
Örn Birgis, Valur Örn Arnarson. Fremri röð frá vinstri: Óskar Bjarni Óskarsson, Val-
garð Thoroddsen, Þórarinn Ólafsson, Sveinn Sigjhmsson og Halldór Halldórsson
einn efnilegasta handboltamann landsins.
Það var þó enn langt í land enda var hann
kallaður af ákveðnum íþróttafréttamanni
„hinn renglulegi unglingur Olafur Stef-
ánsson“ á sínu fyrsta ári með meistara-
flokki. Þetta var árið 1991 en þá varð Val-
ur einmitt íslandsmeistari. Hann hugsar
ávallt næsta leik líkt og klókur skákmaður
og þrátt fyrir að vera 18 ára kominn í
meistaraflokk og farinn að leika þó nokk-
uð þá var hann farinn að hugsa það að
hann myndi aldrei komast í fremstu röð
198 sm og 70 kg!! Hann lyfti því reglu-
lega og fékk oft að heyra það frá samherj-
um að hann ætlaði sér meira en hanga í
íslensku deildinni. Hann leitaði ráða hjá
ýmsum sem gætu hjálpað honum og vissi
líkt og í dag að það er alltaf hægt að bæta
sig. Óli lagði meira á sig en flestir og
uppskar eftir því enda vinnur hann sín
verk þannig, hvort sem það er í skólanum
eða íþróttum. Maður hefði nú haldið að
markahæsti leikmaður EM í Svíþjóð 2002
gæti nú farið að slaka örlítið á, en þegar
ég var í heimsókn hjá honum á síðasta
tímabili þá lék hann gegn Kolding í Evr-
ópukeppninni á laugardegi og fékk svo
langþráð tveggja daga frí, en það kemur
ekki oft fyrir í þessari hörðu deild. Dag-
inn eftir leikinn dró hann mig og Theódór
Hjalta með sér í keppnishöllina til að
æfa!! Sunnudagur, góðan dag, og þama
vomm við staddir í 8.000 manna keppnis-
höll með gamla tannlausa Þjóðverja að
þrífa eftir leik helgarinnar. Lyftingar og
sprettir voru á dagskránni en ég bjóst við
fríi þar sem þjálfun er meira minn vett-
vangur í dag, nei nei maður var látinn
keppa við einn fremsta handboltamann
heimsins í dag!! Ég hljóp tvo spretti fyrir
kurteisissakir og fékk mér svo hamborg-
ara og kók.
Það hefur alltaf verið mér mikil hvatn-
inga að sitja með Óla og ræða daginn og
veginn, íþróttir sem lífið sjálft þvf hann
er mikill „pælari" og „grúskari". Það
hjálpar honum örugglega í hinum harða
heimi boltans að lesa um eitthvað sem
tengist einhverju öðru en íþróttum enda
stundar hann fjarnám með atvinnu-
mennskunni. Það er nú þannig að það
sem hann er að læra tengist boltanum og
að sjálfsögðu lífmu almennt. Það er hægt
að yfirfæra margt úr heimspekinni og
andlegum málefnum yfir á íþróttirnar og
nýta til að fá það besta út úr einstak-
lingnum og liðinu. Hvað dugar tækni og
leikskipulag ef leikmaðurinn eða liðið
hefur ekki sjálfstraust? Eða trúir ekki á
það sem lagt er upp, trúir ekki á þjálfar-
ann eða samherjana? Sá þjálfari sem
þekktastur er fyrir að tengja þetta saman
þ.e.a.s. íþróttir og andlegu hliðina er Phil
Jackson, þjálfari LA Lakers í ameríska
körfuboltanum. Hann vinnur mikið með
sínum leikmönnum varðandi annað en
tæknina sjálfa, lætur stærstu íþrótta-
stjörnur heims fá bækur til að lesa, kenn-
ir þeim um Zen trúarbrögð og öndun,
fær þá til að slaka á og taka mótlæti og
meðbyr. Ólafur hugsar mikið út í þessi
málefni og eru þau honum hugfangið.
Hver vill ekki koma inn á völlinn og
standa sig? Hann hefur ávallt spáð mik-
ið í hvemig hentugast sé að undirbúa sig
fyrir leiki, skoða andstæðingana, í hug-
anum og á videó, hvíla sig og nærast.
Það þýðir ekki að mæta klukkutíma fyrir
leiki og ætlast til að þjálfarinn „öskri“
sig í gang. Þetta er miklu lengra ferli og
æfmgamar þurfa að koma leikhugmynd-
um þjálfarans og liðsins saman svo allir
viti hvað þeir eigi að gera og séu á sömu
blaðsíðu og vinni að sama markmiði. En
hvað með hugann? Ef við æfum sex
sinnum í viku og 90 mínútur í senn þá
gerir það 540 samtals en hve mikill tími
fer í hugarþjálfun, styrktarþjálfun, hvíld
og jafnvel félagslega þáttinn?
Ólafur hefur unnið til margra titla.
Sem dæmi vann hann alla titla sem hægt
var að vinna með Val og þar af varð hann
fimm sinnum íslandsmeistari með meist-
araflokki og einu sinni bikarmeistari.
Arið 1993 var hann valinn efnilegasti
leikmaður Islandsmótsins og fylgdi því
eftir með því að vera valinn besti sóknar-
maðurinn og besti leikmaðurinn tímabil-
ið 1993-'94. 1996 valdi hann að fylgja
Degi félaga sínum, í gegnum svo mörg
tímabil, til Þýskalands og leika með
Wuppertal. Þarna var hann 23 ára gam-
all, afganginn af þessari ævintýrasögu
þekkja flestir; Þýskalandsmeistari árið
2001 með Magdeburg og valinn besti
leikmaður þýsku deildarinnar, Evrópu-
meistari árið eftir og aftur valinn besti
leikmaður þýsku deildarinnar og ekki má
gleyma góðum árangri í Svíþjóð með
landsliðinu en þar endaði liðið í 4. sæti
og Ólafur endaði sem markahæsti leik-
maður mótsins. Þetta er ótrúleg saga og
ég sé ekki fyrir endann á henni því
drengurinn hefur unnið hug og hjörtu
landsmanna sem „handboltahugsuður-
inn“ og ég spái því að hann verði valinn
íþróttamaður íslands árið 2002. Ólafur er
frábær fyrirmynd og stolt okkar Vals-
manna, hann sannar það að maður upp-
sker eins og maður sáir. Hann hefur þurft
að hafa fyrir þessu og það eru líka til
hæfileikaríkir íþróttamenn sem hafa ekk-
ert lagt á sig en við höfum bara því mið-
ur ekki heyrt þeirra getið!
Valsblaðið 2002
19