Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Page 35

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Page 35
35 hafa umsjón með skólum í hverju amti. Meginlaun kennaranna skyldu gjaldast í kornvðru, og þeiin gjðld- um jafnað niður á sarna hátt og fátækraútsvörum. J>etta eru nokkur atriði úr tilskipuninni. Síðan hafa að vísu ýmsar breytingar verið gjörðar á henni, einkum 1856, en aðalatriði hennar eru þó enn í gildi. 1867 var konum lögheimilað að kenna við skóla, þó með nokkrum takmörkunum. Nú er fjöldi kennslukvenna við skóla í Danmörku, einkum í bæjunum, og fer þeim sí- fjölgandi. fegar vjer rennum augum yfir skólasögu Dana, — hjer er að vísu svo fljótt yfir farið að torvelt er að átta sig — þá sjáum vjer, að margt stríðið hefur verið þar svipað eða sams konar sem hjer. Fje hefur þótt vanta til að koma á breytingum og umbótum, kennarar hafa verið illa búnir undir starf sitt, og árangur því orðið miklu minni en ella hefði mátt vænta, alþýða hefur ýmist verið hirðulítil um að styðja að umbótum eða hreint og beint staðið á móti þeim. fetta er líka næsta eðlilegt; hún hefur sjálf ekki lært þetta, sem heimtað er, og heldur því að börn sín muni líka geta komizt af án þess, en er ófús á að leggja í sölurnar fje og fyrirhöfn til þess, sem hún hef- ur ekki trú á að geti borið ávöxt, því að vjer verðum að gæta þess, að skólalög og skólabætur eru seinvirkari en fiest önnur lög og flestar aðrar umbætur; það þurfa að fæðast og deyja kynslóðir, þangað til þau hafa full- grafið um sig, og fara að sýna fyllilega, hver framfara- kraptur sje í þeim fólginn. Yjer megum því ekki kippa oss upp við það, þótt vjer sjáum ekki skyndilega fram- för eða breyting við hver mennta-ákvæði sem gefin eru, og eigi hlaupa fljótlega til þess að afnema þau ákvæði, sem vjer höfum sett, þótt örðugt kunni að framkvæma þau í bráð. Jeg skal sjerstaklega nefna náttúrufræðis- 9*

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.