Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Síða 38
38
til starfa um miðjan ágúst, en í sumar byrjuðu peir
eigi fyr en 21. ágúst; mun pað liafa stafað af kenuara-
fundinum; fyrstu dagana byrjaði engin regluleg kennsla
í peim, svo að pað voru ekki neina uin 3 vikur, sem
jeg gat baft til pess að kynna mjer skólana. I Kaup-
mannahöfn kom jeg i prenns konar skóia — og víðar
kom jeg ekki í skóla í Danmörku —: í lærðaskóla,
barnaskóla og kennaraskóla.
Eins og yður er kunnugt, eru tvenns konar lærðir
skólar íDanmörku: ríkisskólar, eins og latínuskólinn lijer,
og einstakramanna skólar. Kíkisskólarnir eru 13, og er
ekki nema einn peirra í Kaupmannaböfn, metrópólitan-
skólinn. Lærðir skólar einstakra manna eru um 20,
og eru 12 af peim í Kaupmannahöfn. Auk pessa eru
yfir 50 gagnfræðaskólar, og í sambandi við íiesta latínu-
skóiana standa bæði gagnfræðadeildir og undirbúnings-
deildir. í Kaupmannahöfn er undirbúningsdeildinni,
að minnsta kosti víðast, skipt í 6 bekki, eins og sjálfum
latínuskólanum, og purfa pví nemendur 12 ár til pess
að ljúka af námi í undirbúningsskólanum og lærðaskól-
anum. í undirbúningsskólann koma börn á sama aldri
eins og í barnaskólann, 6- 7 ára, og læra par að miklu
leyti sömu námsgreinir og í barnaskólum; pó er peim
kennt par meira og miuna í ensku, frönsku og pýzku,
annaðhvort öllum pessum málum eða sumum peirra.
Úr pessum undirbúninesskólum geta nemendur síðan
gengið beinlínis inn í latínudeildina eða gagnfræðadeild-
ina. 1 gagnfræðadeildinni eru 4 eins árs bekkir, en 6
í latínudeildinni eins og hjá oss. Danir hafa pannig
nánara samband milli æðri og lægri skóla siniia en vjer,
par sem peir heimta engan latínulærdóm til pess að
mega setjast í neðsta bekk latínuskólans. Ekki veit jeg
til að peim pyki sjerleg vandræði stafa af pví fyrir-
komulagi. í lærðum skólum er almenut að kennslu-