Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Side 42

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Side 42
42 bæði í Danmörku og annarstaðar, að börn skuli njóta kauplausrar kennslu, og ríkið styrkja barnaskóla og ung- lingaskóla með fjárframlögum meira en verið hefur. Hjer um bil er hið sama kennt í gjaldskólum og frískólum í Kaupmannaböfn, en eigi að síður skiptast börn pó dálítið í flokka i skóla þessa, pannig að efnaðri manna börnin leita beldur gjaldskólanna, og árangur mun verða par betri af kennslu, pví að börnin standa betur að vígi með heimafræðslu alla og viðurgjörning. I þeim frískóla, sem jeg kom í, var að minnsta kosti mjög kvartað yíir að erfitt væri að gjöra kennsluna nota- góða, og að heimilin gjörðu sáralítið til að hjálpa skól- anum, enda væri peim ekki hægt um vik; flestir for- eldrarnir væru verkamenn, sem yrðu að vera úti við vinnu sína allan eða mestallan daginn, og auk pess væru sum af börnunum látin vinna mestan pann tíma, sem pau væru ekki í skólanum, annað hvort í verksmiðjum eða á annan hátt. Börnin báru pað sum með sjer, að þau mundu hafa viðurværi af skornum skammti, og vjer vit- um hve mikil áhrif pað eitt getur haft á framfarir nemanda. Nú er farið að reyna að ráða bót á viður- værisskorti fátæklinga barnanna, með því að gefa nokkr- um af þeim eina góða máltíð á dag í skólanum, og hefur slíkt farið í vöxt ár frá ári. í síðustu skýrslum, sem jeg hefi sjeð, voru barnaskólar er bærinn kostaði í Kaupmannahöfn 22, 14 frískólar og 8 gjaldskóiar, en síðan munu tveir skóiar hafa verið byggðir, og gengu um 27,000 börn á pá; við pá kenndu 316 karlar, og 377 kennslukonur. Auk pessa voru taldir 107 ýmiskon- ar einstakra manna skólar með nálægt 9000 börnum. Byrjunarlaun fastra kennara eru 1400 krónur á ári, og hækka á 15 árum upp í 2500 krónur; byrjunarlaun kennslu kvenna eru einnig 1400 krónur, og hækka á 6 árum upp í 1600 krónur.

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.