Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Blaðsíða 44
44
má fleira telja þeim til gildis, en dýrari verða þau en
gömlu borðin. Ef þau eru að ðllu gjörð eins og bezt
þjkir gegna, mun hvert tveggjamanna borð kosta um
20 krónur, en jeg sá þau líka þannig gjðrð, að þau eru
mjðg litlu dýrari en eldri borðin Nokkru meira
rúm þurfa þau en löngu borðin, en þó ekki meira en
svo, að þau komast vel fyrir og meira til í hverju því
herbergi, sem ekki er of þröngskipað.
Altítt er að hafa veggina í skólastofunum þakta
landsuppdráttum og myndum, sem eiga við þá grein
náttúrufræðinnar, sem í þeim bekk er kennd. En hvern-
ig á að fara nð því að halda þessu óskemmdu á stein-
veggjum? J>að er svo umbúið að myndirnar þurfi ekki
að snerta veggina. Sumstaðar veit jeg að svo er út búið
að járnteinar eru látnir ganga frain með veggjunum upp
undir lopti; við þá eru festir járnvírskrókar, og á þá
eru uppdrættirnir hengdir.
\eggjataflan eða svarta taflan er sí og æ að verða
meira notuð í skólunum. Yið kennslu flestra náms-
greina skrifar eða teiknar kennarinn skýringar sínar á
hana. þegar töflur þessar eru fastar á vegg, þá er torvelt
að hafa þær á þeim stað, er allir sjá vel á þær, hvernig
sem birtu hagar. Til þess að ráða úr þessum vandræð-
um, er nú einnig farið að hafa töflur er leika á ásum
í grind. |>egar svo er út búið, vinnst það, að auðvelt
er að flytja töfluua úr einum stað á annan í skólaher-
berginu, að hægt er að snúa henni svo við birtu, að
hún falli sem bezt á hana og, að auðvelt er að skrifa
báðu megin á töfluna.
Að sjálfsögðu höfum vjer eigi efni á að byggja eins
vönduð eða haganleg skólahús eins og Danir gjöra; en
leitt er til þess að vita, að líklega er ekkert af þeim
skólahúsum, sem byggð hafaverið, eins haganlega byggt
eins og mátt hefði eptir þeim efnum, sem fyrir höndum
J