Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Side 56

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Side 56
56 kosti munu þeir, sem mest eiga að hafa notin af starfi þeirra, hafa eitthvert eptirlit með hvernig þeir leysi það af hendi. Áður en jeg liverf frá að tala um skóla, ætla jeg að minnast fám orðum á lýðháskólana, þótt jeg að vísu sæi engan þeirra sjálfur. Nú eru um 70 slíkir skólar í Danmörku, og fer þeim jafnt og þjett fjölgandi. Á síð- ustu 10 árum hafa 20 þeirra komið upp. Á flestum þeirra fer fram kennsla bæði karla og kvenna, en þó er eigi kennt saman körlum og konum, nema á tveim af þeim, heldirr sinn árstímann hvorri deild. Skólatími í karladeildinni er venjulega 5-6 mánuðir ár hvert, frá nóv. til marzloka, eða frá nóvember til aprílloka, en í kvenna- deildinni 3 mánuðir, maí, júni og júlí. Skólar þessir eru einkum ætlaðir alþýðumönnum, og var í fyrstu lít- ill eða enginn lexíulærdómur á þeim, en aðalaugnamið þeirra að vekja íhugun nemenda, og mestmegnis hafðir til þess fyrirlestrar. Að vísu halda þeir að nokkru leyti áfram í sama horfi, en þó er nú farið að kenna þar beinlínis meira en áður var; þeir eru að færast nær amtskólunum norsku og gagnfræðaskólum vorum. Danir, Norðmenn o. fl. hafa fundið þörf á því að veita þeim alþýðumönnum sínum, sem girntust, meiri menntun en barnaskólar veita, og eigi síður hitt að gefa þeim kost á að fást við lærdóm, þegar þeir hefðu náð meiri andlegum þroska en barnið hefur til að bera. En hví stofnuðu þeir sjerstaka skóla til þeirra hluta? Hversvegna Ijetu þeir sjer ekki nægja með gagnfræða- skóla sína? J>að liefur sjálfsagt komið til af því, að þeir hafa ekki talið gagnfræðaskóla menntunina, í því horfi sem hún er hjá þeim, alls-endis hagkvæma handa bændalýð; enda mun það sannast að segja, að gagnfræða- skólar með sama fyrirkomulagi og erlendis geti ekki samrýmst við danska lýðháskóla, norska amtsskóla og

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.