Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Page 58
58
sýnd allskonar kennsluáhöld, veggkort, landkort, jarð-
líkön, skrifbækur, skólaborð, skólatöflur, og yfir höfuð
flest kennsluáhöld og margvísleg sýnishorn af ýmsum
peirra bæði dönsk og útlend; par er og allmikið skóla-
hókasafn, og eptir pví sem pað er nú að vaxa, mun
varla á löngu líða, að eigi purfi annað en fara pangað
til pess að geta sjeð flestar danskar skólabækur, að
minnsta kosti alpýðuskólabækur; par eru og ýmsar út-
lendar bækur.
Skólasöfn eru að koma víða upp nú á síðustu ár-
um óg útlit fyrir að peim muni fjölga. Að vísu er all-
mikill kostnaður við söfn pessi, en pó minni fyrir pá
■sök, að eigi parf að kaupa nema nokkuð af safn mun-
ununi; pað er hagur fyrir eigendur peirra að senda pá á
-safnið; á annan hátt geta peir varla orðið betur kunn-
ir. þriggja manna nefnd stjórnar skólasafninu í Kaup-
mannahöfn; veitir hún skólamöunum í Danmörku jafn-
framt upplýsingar um skólabækur skólaáhöld og skóla-
húsabyggingar; væri alls eigi óhugsandi að vjer gætum
og fengið upplýsingnr úr peirri átt, ef oss fýsti.
Jeg get varla búizt við pví að lagt verði út í að stofna
■hjá oss skólasafn að svo stöddu, en pað vildi jeg bera
upp fyrir yður, hvort yður sýndist ekki gjörlegt, að vjer
kennarar stofnuðum vor á meðal dálítið lestrarfjelag, er
safnaði að sjer uppeldisritum. Jeg veit að pjer játið
allir, að mjög er mikilsvert fyrir oss að geta haft nokkra
Vitneskju um uppeldishreyíingu nútímans yfir höfuð, og
breytingar á meðferð einstakra kenuslugreina, eóa með
öðrum orðum, að geta sjeð nokkur af hinum mörgu
nppeldistímaritum og kennslubókum, sem árlega koma
út. En pjer munuð og ílestir hafa fundið, hve líttkleift
pað er fyrir hvern einstakan yðar, að leggja fram pað
fje, sem til pess parf. Jpar bæta bókasöfn vor líka lítið
úr skák; af peim er ekki hægt að fá mikið af slíkum
l.