Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 72

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 72
72 FAGLEGT S JÁ LFSTRAUST GRUNNSKÓLAKENNARA Woolfolk Hoy og Burke Spero (2005) setja fram gagnlegar ábendingar um hvernig megi byggja upp og viðhalda faglegu sjálfstrausti. Þær undirstrika ábyrgð hvers kenn- ara á sjálfum sér og benda á að þeir þurfi að hafa í huga hve miklu máli það skiptir að þeir nýti sér áhrif sín sem fagmenn. Þeir verði sjálfir að standa vörð um hæfni sína með því að leita eftir fyrirmyndum og leiðbeinendum, biðja um nauðsynleg kennslutæki, halda skrá yfir það sem vel gengur hjá þeim, og einnig með því að finna sér samstarfs- hóp sem trúir á getu nemenda og læra af því fólki. Rannsóknir á faglegu sjálfstrausti Hjá Woolfolk Hoy og Burke Spero (2005) kemur fram að kennarar með gott faglegt sjálfstraust leggi yfirleitt meira af mörkum til skipulags og hafi meiri eldmóð en þeir sem hafa minna faglegt sjálfstraust. Þeir séu opnari fyrir nýjum hugmyndum og vilj- ugri að reyna nýjar aðferðir til að mæta betur þörfum nemenda sinna (t.d. Cousins og Walker, 2000). Einnig kemur fram að kennarar hafi tilhneigingu til að leggja meiri áherslu á kennslu á þeim sviðum þar sem faglegt sjálfstraust þeirra er gott og minni áherslu þar sem þeir hafa minni trú á sjálfum sér. Chen, Goddard og Casper (2004) staðfestu tilgátu sína um að almennt sjálfsmat hafi áhrif á starfstengt sjálfsmat, og það hafi síðan áhrif á viðhorf til starfs og vinnustaðar. Brouwers og Tomic (2000) sýndu fram á tengsl milli faglegs sjálfstrausts kennara og kulnunar, þannig að þegar bekkjarstjórnun þeirra er lítil, þ.e. þeir eiga erfitt með að stjórna bekknum sínum, auki það á hlutgervingu. Hún er einn af undirþáttum kuln- unar; átt er við að kennarinn fjarlægist verkefni sín og nemendur og hann líti fremur á þá sem hluti en fólk. Því er mikilvægt að huga að nægri færni í bekkjarstjórnun þegar á að fyrirbyggja og meðhöndla kulnun. Hoy og Woolfolk (1993) gera ráð fyrir að tengsl milli faglegs sjálfstrausts kennara og skólans sem stofnunar séu gagnkvæm. Skólabragur hefur áhrif á faglegt sjálfstraust, sem svo aftur hefur áhrif á það hvernig kennarar skynja skólabraginn. Rannsókn þeirra leiddi í ljós að áhrif skólastjórans og bóknámsáherslur skólans skiptu mestu máli, og sjálfstraust kennara tengdist viðbrögðum stjórnenda við að leysa úr vandamálum við bekkjarstjórnun og kennslu. Hvorki virtist sem samskipti eða samband kennara við skólastjóra skipti þarna máli. Líkur eru leiddar að því að persónulega notalegt og styðjandi vinnuumhverfi í skóla geti skipt máli fyrir andlega vellíðan kennara, gert þá ánægðari í starfi og/eða dregið úr streitu, þótt það virðist hafa lítil áhrif á faglegt sjálfstraust þeirra gagnvart erfiðum nemendum. Hipp og Bredeson (1995) telja að í krafti stöðu sinnar hafi skólastjórnendur einstakt tækifæri til þess að stuðla að nýbreytni og hafa styðjandi og hvetjandi áhrif á faglegt starf. Í rannsókn sinni fundu þau sterk tengsl milli faglegs sjálfstrausts kennara og skólastjóra sem er góð fyrirmynd í faglegu starfi og veitir virka og sanngjarna umbun. Kennarar sem telja sig fá ónógan stuðning frá skólastjóra og samkennurum gengur verr að afla sér stuðnings, og það veldur enn frekari einkennum kulnunar (Brouwers, Evers og Tomic, 2001). Kemur það heim og saman við rannsóknir sem sýna að stuðn- ingur og hvatning í starfi er kennurum mikilvæg og fyrirbyggir kulnun (Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir, 2007b; Maslach, Schaufeli og Leiter, 2001; Anna Þóra Baldursdóttir, 2000; Travers og Cooper, 1996).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.