Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Qupperneq 75
75
vALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR, ANNA ÞÓRA BALDURSDÓTTIR
um hjúskaparstöðu. Eftirfarandi vinnustaðarþættir voru kannaðir: a) margvíslegar
eigin spurningar, t.d. um vinnutíma og b) spurningalisti um heilsufar á vinnustöðum
(Leiter og Maslach, 2000), en áður hefur verið greint frá niðurstöðum um hann (Anna
Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir, 2007a). Þá var lagður fyrir c) spurn-
ingalisti Schwab og Iwanicki (1982), sem áður hefur verið greint frá niðurstöðum um
(Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir, 2007b).
Áður hefur verið greint frá niðurstöðum um kulnun (Anna Þóra Baldursdóttir og
valgerður Magnúsdóttir, 2007b), en til að meta hana var MBI-spurningalistinn not-
aður (Maslach Burnout Inventory). Þar má sjá umfjöllun um fræðilega hlið kulnunar,
erlendar rannsóknir og fyrri rannsókn annars rannsakenda (Anna Þóra Baldursdóttir,
2000).
Rannsakendur höfðu í huga ýmsar tilgátur annarra höfunda, sem þó tengdust ekki
beint þessari rannsókn. Til dæmis að samband væri milli almenns sjálfstrausts og fag-
legs sjálfstrausts (Chen o.fl., 2004), sem og milli kennaranáms og faglegs sjálfstrausts
(Ragnhildur Bjarnadóttir, 2004; Hoy og Woolfolk, 1993). Ennfremur að samband væri
milli faglegs sjálfstrausts og kulnunar annars vegar og námsárangurs og námsáhuga
nemenda hins vegar (Hoy og Woolfolk, 1993). Þessir þættir eru merktir inn á tilgátu-
líkanið til að benda á að áhugavert væri að raunprófa þá í þessu samhengi, en þeir
koma ekki við sögu að öðru leyti í þessari rannsókn.
Mynd 1 – Tilgátur um orsakir kulnunar.
aðfErð
Spurningalisti var lagður fyrir kennara í þeim skólum sem þátt tóku í rannsókn-
inni. Notuð var styttri útgáfa af spurningalista Tschannen-Moran og Woolfolk Hoy
um mat kennara á faglegu sjálfstrausti sínu (The Teachers’ Sense of Efficacy Scale,
TSES). Þessi spurningalisti var valinn vegna þess að hann er byggður á kenningum
um faglegt sjálfstraust kennara. Hann er einfaldur í notkun, spurningarnar eru skýrar
og undirþættir hans sömuleiðis. Höfundar listans útskýra aðferðir við gerð hans á
greinargóðan hátt og hann uppfyllir vel aðferðafræðilegar kröfur um góðan áreið-
anleika undirþáttanna. Í honum eru 12 spurningar (sjá töflu 1) um möguleika kennara
á að aðstoða og hvetja nemendur sína, halda uppi aga og bekkjarstjórnun og sinna
kennslu á faglegan hátt, m.a. með fjölbreyttum aðferðum. Hver spurning gefur eitt til
Vinnustaðarþættir
Hlutverkaskýrleiki/-árekstrar
Eigin spurningar, heilsufar vinnustaðar
Faglegt sjálfstraust
Teacher self-efficacy scale
(TSES)
Nám kennara
Almennt
sjálfstraust
Námsárangur og
námsáhugi nemenda
Bakgrunnsþættir
Kyn, menntun, starfsreynsla,
starfshlutfall, bekkjarstærð o.fl.
Kulnun
Maslach Burnout Inventory (MBI)