Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 10
2
BÚNAÐARRIT
var sonur B jörns bónda á Bjarnastöðum í Mývatnssveit,
Björnssonar bónda í Skal, Nikulássonar Búcbs, er var
norskur maður, en bvarf frá ættlandi sínu út hinjíað til
Islands og settist að á Húsavík, þar sem liann stundaði
beykisiðn og verzlunarstörf. Sigrún, kona Steinþórs og
móðir Steingríms, var dóttir Jóns alþingisforseta og
bónda á Gautlöndum Sigurðssonar, bónda þar, Jónsson-
ar. Ekki var Sigrún hjónabandsbarn. Var móðir liennar
Sigríður Jónsdóttir bónda á Arnarvatni, Jónssonar, og
konu lians Guðrúnar, er var laundóttir Jóns prests Þor-
steinssonar í Reykjahlíð. Varð Sigríður síðar 3. kona
Jóns skálds Hinrikssonar á Helluvaði. En Solveig, dóttir
Jóns prests og hálfsystir Guðrúnar, var kona Jóns alþm. á
Gautlöndum.
Foreldrar Steingríms voru glæsileg bjón, búin miklum
mannkostum og óvenjulegu atgervi, líkamlegu jafnt sem
andlegu. Steinþór var bið mesta karlmenni, mikill skaps-
munamaður, ef til vill barðlyndur nokkuð og ekki Iilífi-
samur, hvorki við sjálfan sig né aðra; hrjúfur bið ytra,
en eblur brennandi inni fyrir. Um tvítugsaldur fór hann
til Kaupmannahafnar og lærði þar steinsmíði. Er heim
kom að námi loknu, tók bann jiegar til við smíðar og
vann að þeim öðrum þræði alla ævi; var því löngum
stundum fjarri beimili sínu. Steinjiór var listasmiður og
lék allt í liöndum lians, afburðamaður um afköst og verk-
hyggni, enda eftir lionum sótzt til að standa fyrir gerð
ýmissa meiri háttar bygginga og mannvirkja; m. a. sá
bann um smíði hengibrúarinnar á Jökulsá í Öxarfirði
sumarið 1903—1904. Þá var það síðara vorið, að Stein-
þór varð fvrir miklu áfalli. Brotnaði fóturinn hægri og
molaðist allur frá ökla og upp undir bné. Mælti læknir
svo fyrir, að hann yrði að liggja rúmfastur sumarið allt.
En Steinþór fór ekki að því. Eftir að bafa legið í hálfan
mánuð á Húsavík og naumlega þó, lét hann flytja sig á
kviktrjám norður í Öxarfjörð. Þar var bann borinn milli
vinnuflokka við brúna, unz farið gat að staulast við staf.