Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 104
96
BÚNAÐARRIT
Búnaðarfélagi íslands var boðið að senda aheyrnarfull-
trúa á fund þennan, en áður hef ég setið nokkra slíka
fundi og reynt að fylgjast með störfum samtakanna.
Ákveðið var, að við Hjalti Gestsson, ráðunautur Búnað-
arsambands Suðurlands, sætum fund þennan, þar sem
við fórum utan til að sækja 9. alþjóðaráðstefnu í búfjár-
rækt, sem haldin var í Edinborg um svipað leyti, þ. e.
dagana 11. til 18. ágúst. Ársfund þennan liöfðu naut-
griparæktarsamtökin í Skotlandi undirbviið með ágætum,
og nutu fundarmenn jafnframt hinnar rómuðu gestrisni
Skota. Auk félagsmála og samræmingar í skýrslulialdi og
mælingum, voru ræddir ýmsir þættir nautgriparæktar-
innar, einkum síðasta daginn, en þá var sameiginlegur
funduir með nautgriparæktarnefnd Búfjárræktarsam-
bands Evrópu. Meðal annars var þá rætt um tilliögun
nautakjötsframleiðslu. Efnt var til ferðar einn daginn að
skoða kúabú, þar sem voru kýr af kunnustu mjólkur-
kúastofnum Breta. Hinn 11. ágúst liélt nautgriparæktar-
nefnd Búfjárræktarsambands Evrópu áfram fundi, og sat
-ég bann af íslands hálfu. Sama dag var aðalfundur sam-
bandsins haldinn, og sat ég hann ásamt öðrum fulltrúum
frá Islandi, sjá skýrslu búnaðarmálastjóra.
Dagana 4. til 12. desember tók ég þátt í bændaför til
Englands sem einn af fararstjórum. Er nánar greint frá
för þessari í starfsskýrslu Agnars Guðnasonar, sem hafði
veg og vanda af undirbúningi hennar. Ég ldutaðist til
•um, að Samband mjólkurframleiðenda í Englandi og
Wales, Milk Marketing Board, sæi um heimsóknir á bæi
einn daginn, og urðu samtökin vel við því og sendu með
í förina nokkra af færustu sérfræðingum sínum, er út-
skýrðu tilliögun á skýrsluhaldi yfir mjólkurkýr, afkvæma-
prófanir nauta, starfsemi sæðingarstöðva og hagfræðileg
atriði við mjólkurframleiðsluna, auk þess sem tvö kúabú
voru skoðuð.
Önnur störf. Ég átti á árinu sæti í Tilraunaráði land-
búnaðarins, sem liélt fund dagana 24. og 25. marz, og