Búnaðarrit - 01.01.1967, Síða 150
142
BÚNAÐARIiIT
nefndar, op reynslunni ríkari, sem aðili að þeim athöfn-
um, mundi ég aldrei geta mælt með þvílíkum ráðstöfun-
um til framdráttar bústofni í heilum landshluta. Annarra
ráða yrði að leita til þess að auðvelda þvílíkar atliafnir,
en sjálfsagt að hlaupa undir bagga, eigi að síður, þegar
hallast — eins og gerðist í þetta sinn — liagur bænda á
heilu landssvæði. 1 hverjum landshluta verður að skapa
nokkurn öryggisventil í þessum efnum, er grípa má til,
þegar óáran ber að dyrum.
Árangurinn af athöfnum öllum varð eins og til var
stofnað. Bústofni var borgið austanlands, og sumarið
reyndist þar hagstæðara en í öðrum landslilutum, svo að
fóðurfengur og búfé reyndist þar hetur en í öðrum lands-
hlutum, en landið er þó ekki gróið sára sinni með öllu
eftir stórkostleg köl.
Hlutur minn í því hlutverki að framkvæma það, sem
þurfti, við útvegun og flutninga fóðurs til Austurlands,
var aðeins brot af athöfnum öllum. Fjöldi manna stóð að
störfum þar, en frá hálfu Búnaðarfélags Islands höfðum
við Guðmundur Jósafatsson aðalönn og athafnir í þeim
efnum.
Með aðstoð Guðmundar hef ég, eftir sumar, er gaf
bændum víða um land of lítinn fóðurfeng, hlotið að
skoða með gaumgæfni, hvernig sett er á vetur í þetta sinn,
og gert ráðstafanir hér og þar, strax og forðagæzluskýrsl-
ur hafa borizt, til þess að knýja á um ráðstafanir til þess,
að öryggisventlar verði virkir svo sem verða má að þessu
sinni. Bændur víða um land höfðu of lítil hey á haust-
nóttum og vetur liófst snemma. Þannig óx vandinn að
þessu sinni, og þótt Búnaðarfélag Islands sé ekki hand-
hafi valds til úrbóta, er sýnilega er fóðurskortur fram-
undan, ef ekki vetrar betur en í meðallagi, er þó hlutverk
þess að benda sveitarstjórnum á vandann og leita með
þeim ráða til xirbóta. Hér í hvílir hagfræðileg þörf og
skylda, sem ekki má bregðast. Og þeirri skyldu höfum við
leitazt við að framfylgja, þar sem þörf kallar.