Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 250
242
BÚNAÐARRIT
næðingar sl. vetnr og vor fóru líka illa með kvist- og
trjágróður, einkum sumar liinar innfluttu tegundir. 1
uppsveitum sunnanlands, þar sem trjágróður slapp að
mestu eða öllu leyti við skemmdir í aprílhretinu 1963,
fór liann mjög illa sl. vor, t. d. í Haukadal í Biskups-
tungum, þar sem urmull trjáa var eirrauður um Jóns-
messuleytið í sumar.
Því miður bendir margt til þess, að öruggara verði að
treysta gróðri af innlendum uppruna en erlendum til
ræktunar hér á landi, þegar eitthvað á bjátar, þótt von-
andi reynist sumt af hinum innflutta gróðri þolið.
Heyskapartíð var yfirleitt hagfelld, og nýting heyja
var víðast hvar ágæt og hvergi slæm. Þó urðu verulegir
heyskaðar um austanvert landið, sérstaklega þó í Skafta-
fellssýslum og allt vestur undir Eyiafjöll í ofsaveðri dag-
ana 22.-24. júlí.
Heyskapur varð með allra minnsta móti í flestum sýsl-
um landsins sérstaklega í þeim landslilutum, sem snjó-
lausir voru sl. vetur og jarðklakinn var mestur í. Tún
spruttu mjög seint vegna jarðklakans og kuldatíðar fram
eftir vori og sumri. Sláttur hófst með allra seinasta móti,
víða ekki fyrr en nokkuð var liðið á júlímánuð. Víða
voru tún þó mjög illa sprottin, er sláttur hófst, en sakir
kulda og þurrka spratt há víðast livar afar illa, nema
þar sem allra fyrst var slegið og borið á eftir fyrri slátt.
Lítið var því slegið af há, og víða spratt hún ekki nóg
til haustbeitar fyrir kýr.
Á Austurlandi var lieyfengur þó í góðu meðallagi og
mun meiri en 1965, og í Austur-Skaftafellssýslu liefði
orðið metheyskapur, ef ekki hefði tapazt liey í óveðrinu
í júlí.
Haustið var með afbrigðum úrkomulítið og hægviðra-
samt sunnan og vestan lands allt til októberloka. Var það
góður sumarauki, grös féllu þar seint og fé fór vel með
sig fram eftir liausti. Þó var tíðin freniur köld. Á austan-
verðu Norðurlandi var haustið fremur kalt og nokkuð