Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 170
162
BÚNAÐARRIT
BúnaSarþing 1965 fól stjórn Búnaðarfélags Islands að
láta atliuga, „livort tiltækilegt sé að framkvæma þá hey-
verkun, lieymjöls- og heykögglagerð, sem með liag-
kvæmni og á fjárliagslega liagstæðum grundvelli gæti
innt af liendi það hlutverk að tryggja fóðurbirgðir í
landinu og til iitflutnings lieys, þannig verkaðs, á erlend-
an markað“.
Stjórnin valdi okkur Björn Bjarnarson, ráðunaut, og
Pál Sveinsson, sandgræðslustjóra (nú landgræðslustjóra),
til þessara atliugana. Vegna ónógra innlendra upplýsinga
hafðist nefndin ekkert að á árinu 1965 og ekkert fyrr en
8. nóv. 1966, að hún hélt 1. fund sinn. Þá var Björn
Bjarnarson farinn í vetrardvöl til Danmerkur, en stjórnin
liafði kvatt Jónas Jónsson, ráðunaut, sem staðgengil lians
í nefndina. Nefndin mun reyna að skila skýrslu um málið
til Búnaðarþings 1967.
Ásgeir L. Jónsson.
Starfsskýrsla Ragnars Asgeirssonar
A síðastliðnu ári varð breyting á starfi mínu hjá Búnað-
arfélagi Islands, sökum þess að ég hafði þá nýlega náð
sjötíu ára takmarkinu. Þó var óskað, að ég starfaði áfram
að hálfu leyti hjá félaginu, og var mér ljúft að verða við
þeirri bón. Skyldi ég liafa á hendi sömu störf og ég hafði
áður gegnt.
Mestur hluti starfsins á þessu ári liafa þó orðið skrif-
stofustörfin, sem liafa allmikið aukizt eftir að Biinaðar-
félagið flutti í hin nýju og rúmgóðu lmsakynni í Bænda-
höllinni.
Auk venjulegra skrifstofustarfa hefur skrifstofan af-
greiðslu Búnaðarritsins og Handbókar bænda, og á árinu
bættist við afgreiðsla búnaðarblaðsins Freys, sem kemur