Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 294
286
BÚKAÐAR RIT
fá reynslu á öll ung naut, áður en þau verða notuð að
marki, og svo kann aS fara, að notkun allra nauta verði
takmörkuð, hversu góðir kynbótagripir, sem þau verða.
1 rauninni getur þá svo farið, að það, sem takmarka
muni framfarir í ræktun íslenzka kúakynsins, verði, hve
fáar kvígur þarf að setja á árlega til viðhalds og aukn-
ingar, en þeim mun meira öryggi fæst í ræktuninni sem
fleiri kvígur eru settar á undan hverju nauti. Því meiri
nauSsyn verSur, a& afurSaskýrslur verfti haldnar yfir
sem allra flestar kvígur undan nautum sæ&ingarstö&vanna.
Nautgriparæktarfélögin verða því nú að gera sér Ijóst,
að kynbótastarfið veltur á skýrsluhaldinu að miklu leyti
þrátt fyrir gagnsemi afkvæmarannsóknastöðvanna, þar
sem áhrif sæðingarnautanna á stofninn til liins betra
eða lakara verða stöðugt víðtækari og örari.
Meiri Jiátttaka í nautgriparæktarfélagsskapnum slyrk-
ir liann félagslega og fjárhagslega og stuðlar að enn
örari kynbótum en verið Iiafa. Því er nauðsyn, að
stjórnir félaganna geri nú myndarlegt átak til eflingar
starfseminni.
Þri&ja áriS í röS er metár í aíurSasemi kúnna allt
frá stofnun nautgriparœktarfélaganna fyrir röskum sex
áratugum, hvort sem reiknaS er eftir meSalnyt árskúa
eSa fullmjólkandi kúa, mjólkurfitu eða fitueiningum.
Sést þetta í eftirfarandi:
Ár 1963 1964 1965
Meðalnyt árskúa, kg ........................... 3346 3389 3420
Með'alnyt fullmjólkandi kúa, kg ............... 3538 3563 3608
Meðalnijólkurfita fullinjólkandi kúa, % .... 3,96 4,00 4,02
Meðaltal fe fullinjólkandi kúa, % ............ 14010 14252 14504
Meðalkjarnfóðurgjöf ftillmjólkandi kúa, kg . . 572 546 575
Hefur meðalnyt reiknaðra árskúa liækkað um 31 kg frá
árinu áður, en fullmjólkandi kúa um 45 kg, mjólkurfita
Jieirra um 0,02 miðað við hundraðsliluta og fitueiningar
um 252. Kjarnfóðurgjöf fullmjólkandi kúa hækkaði um