Búnaðarrit - 01.01.1967, Side 61
SKÝKSLA B ÚNAÐAR MÁLASTJÓRA 53
ráSunantum um Suðurland, og um Eyjafjörð í boði Sam-
bands nautgriparœktarfélaganna þar.
Ég vil þakka öllum þeim, sem aðstoðað hafa Búnaðar-
félag Islands við móttökur liinna erlendu gesta, bæði
með risnu og með því að gefa sér tíma til að ferðast með
þeim og veita þeim upplýsingar.
Finnn deildir Félags norrænna búfræðinga (NJF)
komu sér saman um að halda deildarfundi sína í Reykja-
vík dagana 3. - 8. ágúst 1966. Sérstök nefnd undirbjó
fundina. Formaður hennar var Gunnar Árnason, skrif-
stofustjóri Búnaðarfélags Islands, en hann er formaður
Islandsdeildar þessara félagssamtaka. Eftirtaldar félags-
deildir héldu fundi sína liér: I. Jarðvegs- og áburðar-
deild, IV. Jurtasjúkdóma- og meindýradeild, V. Búfjár-
ræktardeild, VII. Bygginga- og véltæknideild og IX. Hag-
fræðideild.
Skráðir þátttakendur voru 133, — 12 frá Finnlandi,
18 frá Svíþjóð, 42 frá Noregi, 22 frá Danmörku og 39
frá íslandi.
Fundurinn var settur í hátíðasal Háskólans. Formaður
Islandsleildar, Gunnar Árnason, setti fundinn og bauð
gesti velkomna. Formaður N. J. F., A. Dam Kofoed, til-
raunastjóri í Askov, ávarpaði fundinn og þakkaði undir-
búningsnefnd fyrir hennar störf. Landbúnaðarráðherra
flutti því næst ávarp, og að því búnu hélt búnaðarmála-
stjóri yfirlitserindi um íslenzkan landbúnað.
Eftir það tóku hinar einstöku fagdeildir til starfa.
Síðustu tvo dagana fóru þátttakendur í kynnisferð um
Suðurland og Borgarfjörð. Undirritaður gat því miður
ekki tekið þátt í þeim ferðum, en bauð þremur sérfræð-
ingum í búfjárrækt, þeim prófessor Viljo Vainikainen,
frá Finnlandi, og Norðmönnunum, prófessor Harald
Skjervold og Trygve Gjedrem, í síðdegisferð austur í
Árnessýslu, á meðan fundir stóðu enn yfir í Reykjavík,
til að sýna þeim í góðu næði allar tegundir íslenzks bú-