Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 300
292
BUNAÐARRIT
aukizt um 0,8 frá árinu áSur. Flestar árskýr á félagsmann
eru í Árnessýslu 17,6, Kjalarnesþingi 17,1 og í Eyjafirði
16,9, en fæstar í Dalasýslu og Vestfjörðum 6,4, reiknað
sameiginlega fyrir þau héruð.
Alls mjólkuðu 511 kýr yfir 20000 fitueiningar á móti
445 árið áður, og er þetta mestur fjöldi kúa í þeim af-
urðaflokki, sem orðið liefur. Skrá yfir 114 af þessum
kúm, sem mjólkuðu mest, J). e. yfir 23000 fe, verður birt
í Frey. Efsta kýrin á skránni er Skrauta 12 á Bakka í
Öxnadal, er mjólkaði 31432 fe. Ársnyt liennar þetta ár
var 7998 kg, sem jafnframt er liæsta nythæð, sem vitað
er, að kýr hér á landi liafi mjólkað á einu ári. Mjólkur-
fitan var 3,93%. Skrauta 12 er fædd 23. maí 1948, og var
J)ví 17 vetra á þessu afurðaári. Hún liefur Jtrisvar hlotið
fyrslu verðlauna viðurkenningu á sýningum og er J)ví
kunn afurðakýr. Hún er undan Búa I 129 og Lukku 2.
önnur afurðahæsta kýrin á árinu, hvort sem reiknað er
í fe eða nytliæð, var Huppa 6 í Baldursheimi í Mývatns-
sveit, dóttir Sturlu N 18 og Helsu 80. Mjólkaði hún 7070
kg með 4,34% mjólkurfitu, þ. e. 30684 fe.
Alls voru á árinu 70 bú með minnst 10,0 árskýr, sein
höfðu yfir 4000 kg meðalnyt á árskú. Eru })au skráð í
töflu III og skipt í J)rjá flokka eftir stærð, en röðun inn-
an hvers stærðarflokks er eftir nythæð. Fyrst eru þau bú
talin, }>ar sent voru 20 eða fleiri árskýr, og eru J)au 19
alls. Efst þeirra er félagsbúið að Naustum við Akureyri
með 4518 kg ineðalnyt eftir 22,6 árskýr. Stærstu búin í
|)essum flokki cru liins vegar félagsbúið á Möðruvöllum
í Saurbæjarhreppi með 45,5 árskýr og Svalbarð á Sval-
barðsströnd með 37,2 kýr. Af J)essuin 19 búum eru 13 í
Eyjafirði (S. N. E.), 3 í Árnessýslu og 3 á sambandssvæði
S.-Þingeyinga. í næsta flokki eru bú með 15—20 árskýr,
og eru þau einnig 19 talsins, og að síðustu bú með 10—15
árskýr, alls 32. Ekki er birt skrá yfir þau bú, sem liafa
færri árskýr en 10, en geta má J)ess, að 19 bú með 5—10
árskýr og 21 lni með færri en 5 árskýr höfðu yfir 4000