Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 252
244
BÚNAÐARRIT
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi framleiddi á árinu
1966 22.720 smálestir af Kjarna, sem er 6,6% minna
magn en framleitt var árið áður. Áburðarsalan seldi alls
á árinu 53.344 smálestir af áburði, þar af 25.455 smá-
lestir af Kjarna, 5.028 smálestir af kalkammonsaltpétri
(26%N), 889 smálestir af kalksaltpétri, 11.243 smálestir
af þrífosfati, 5.550 smálestir af klórsúru kalí og 458 smá-
lestir af brennisteinssúru kalí, 3.500 smál. af garðaáburði
og um 1.200 smálestir af ýmsum öðrum áburðartegund-
um. Því miður liækkaði verð á tilbúnum áburði til bænda
verulega frá 1965. Verð á Kjarna liækkaði 16.4%, á þrí-
fosfati 18.0% og á kalí 10.3%, iniðað við áburðinn kom-
inn á bíl í Gufunesi.
Uppskera og jarSargróSi. Heyfengur var með allra
minnsta móti þegar litið er á landið í lieild, var liann
um 12% minni en 1965, en liey verkuðust yfirleitt vel,
eins og áður var að vikið. Fyrningar voru nær engar
frá fyrra ári. Allmargir bændur reyndu að kaupa liey
sl. sumar, strax er þeir sáu, að eigin lieyfengur yrði allt
of lítill. Nokkrum tókst að útvega sér nokkuð' af heyi, en
öðrum ekki. Verðlag á lieyi fór stöðugt liækkandi, og
sl. haust var það orðið tvöfalt dýrara en haustið áður.
1 árslok var því nær ógjörlegt að fá keypt liey, því liver
virtist liafa nóg með sig. Forðagæzluskýrslur sýndu, að
víða var teflt á tæpasta vaði með ásetning. Forðagæzlu-
menn og fyrirsvarsmenn sveitarfélaga verða að taka þessi
mál föstum tökum. Þeir þurfa að ganga fram í því á
liverju liausti, að þeir, sem lieytæpir eru, tryggi sér hey
eða kjarnfóður strax um velurnætur og byrji að gefa
kjarnfóður svo fljótt til heysparnaðar, að ekki komi til,
að þeir gefi upp lieyin áður en vorbatinn kemur. Það
má engan lienda, sem búfé liefur undir liöndum, að
vera lieylaus, og nú þýðir ekki að treysta á það, að
einhverjir aðrir komi til bjargar, ef illa fer, eða liey fá-
ist þá keypt. Það eru engin bey til sölu. Því miður mun
nú, eins og oft áður, vera mikið til af hrossum í land-