Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 103
SKYRSLUR STARFSMANNA
95
merkustu. Ég vil liér endurtaka þau orð mín á aðalfundi
S. N. E., að ég þakka þessum tveimur mönnum störf
þeirra í þágu íslenzkrar nautgriparæktar. Við liinum
mikilvægu störfum þessara manna taka nú Vernharður
Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri, sem gert liefur upp
skýrslur S. N. E. um fjöldamörg ár og er þaulkunnugur
nautgripastofni Eyfirðinga, og Sigurjón Steinsson, ráðu-
nautur, en liann hefur um alllangt skeið verið bústjóri á
Lundi og séð um daglega framkvæmd þeirra rannsókna
og tilrauna, sem þar liafa verið gerðar.
Frá 12. til 21. nóvember var ég á fyrirlestraferö um
Austurland. Á fundum þessum talaði ég yfirleitt um
fóðrun, kynbætur, mjólkurframleiðslu og kjötframleiðslu
af nautgripum. Sums staðar sýndi ég skuggamyndir af
nautgripum og um mjólkurmyndun og mjaltir, og alls
staðar sýndi ég einhverjar kvikmyndir. Fundirnir voru
haldnir á þessum stöðum: Þórshöfn 12. nóv., Vopnafirði
13. (en þar flutti einnig erindi Sigfús Þorsteinsson, ráðu-
nautur), Egilsstöðum 15., Staðarborg í Breiðdal 17.,
Mánagarði í Nesjum 18. og i Félagsheimili Mýralirepps
19. nóv. Fundi þessa sóttu yfir 200 manns alls. Var fund-
arsókn misjöfn, og átti rysjótt tíð og slæm veðurspá surna
daga einhvern þátt í því. Vegna ófærðar féll niöur einn
fundur, sem halda átti á Norðfirði. A Egilsstöðum sat
ég fund með stjórn Búnaðarsambands Austurlands, ráðu-
nautum þess og nefnd, sem kosin liafði verið til að undir-
búa stofnun sameiginlegs nautgriparæktarfélags fyrir
flesta hreppana á Fljótsdalsliéraði og koma þar á sæð-
ingurn nautgripa. Á Héraði og víðar á Austurlandi er tals-
verður áhugi á nautgripasæðingum vegna bætlra flug-
samgangna.
FcrSalög erlendis. Samtök Evrópunefndar um skýrslu-
hald í nautgriparækt (yfir mjólk og mjólkurfitu),
European Committee on Milk-Buiterfat Recording, hélt
15. ársfund sinn í Edinborg, dagana 8. til 10. ágúst, en
að samtökunum standa 16 Evrópulönd og von á fleirum.