Morgunn - 01.06.1922, Page 16
10
MORGUNN
Taldi hann síðari skýringuna miklu sennilegri lausn á
sumum þeirra. Þótti erindið mjög tilkomumikið. Því að
dr. W. F. P. er gagnrýninn í meira lagi, og áhugasamur
rannsóknamaður. Nokkurar umræður urðu á eftir.
Þriðji ræðumaðurinn var Hereward, Carrington, sem
ml er orðinn með kunnari sálarrannsóknamönnum í Vest-
urheimi Hann var upphaílega sjónhverfingamaður og hélt
þá fram þeirri kenning, að miðlafyrirbrigðin væru ekki
annað en svik. En við nánari rannsókn komst hann að
því, að svo er eigi. Er hann nú talinn sannfærður spiri-
tisti og hefir ritað einar tvær bækur um málið, og hefir
hinn mesta áhuga á rannsóknunum. Talaði hann sérstak-
lega um rannsóknir á miðilshæfileikanum og í hverju
hann mundi fólginn. Kvað hann áreiðanlegt, að loftkend
orkutegund geisli út frá likama miðlanna i trance-ástand-
inu. Hann lýsti og rannsóknastofu, sem hann væri að
koma upp vestra, og áhöldum sinum (The American Psy-
chical Institute).
Á síðara fundinum þenna dag (kl. 2) talaði fyrstur
enski presturinn Drayton Thomas. Ræðuefnið var hinar
svonefndu »bóka- og dagblaða-sannanir«. Hefir hans verið
getið áður í »Morgni« (sjá »Ný tegund sannana«, II. ár,
bls. 171 —182). Skýrði ha.nn frá, að hann hefði gert til-
raunir á 80 fundum með miðilinn frú Osborne-Leonard
— um 47a árs skeið. TeJur hann föður sinn hafa sérstak-
lega fært sér ríkar sönnur á, að það sé í raun og sann-
leika hann, sem sé að gera vart við sig. Hann var prest-
ur hér í lífi, í sömu kirkjudeild og sonurinn (í Methodista-
kirkjunni). »Feda« — litla stúlkan, er kveðst tala af vör-
um miðilsins — hefir við tilraunir þessar sagt frá ýmsu
um föður hans, sem frú Leonard hefir aldrei vitað né
heldur D. Thomas. En síðar hefir hafst upp á því, sum-
part með því að spyrjast fyrir hjá ættmennum prests,
þeim er eldri eru en hann, og sumpart með því að leita
í gömlum dagbókum fööur hans. — Fyrirlesturinn var
fluttur með mikilli sannfæringu. Docent Th. Wereide í