Morgunn - 01.06.1922, Blaðsíða 56
50
MO RGUNN
Merkileg bók.
From the Unconsious to the Conscious, by Gustave Geley
Director of the International Metapsychical Institute, Paris.
Translated from the Freneh by Stanley De Brath, etc.
— London 1920.
(Frá vitundarleysi til vitundar, eftir G. Gr., forstjóra hinnar al-
þjóðlegu s&larrannsóknarstofnunar i París. Þýtt úr frönsku af
Stanley De Brath.)
Þessi bók er að ýmsu leyti harla merkileg. Á henni
má sjá, að sálarrannsóknirnar eru líklegar til að breyta
hugmyndum manna á því nær öllum sviðum og varpa
nýju Ijósi á ýmsar af fræðikenningum vísindanna.
Það er aðallega þróunin — bæði hjá einstaklingun-
um og alheiminum — sem höfundurinn tekur til með-
ferðar. Skiftist bókin í tvo parta. Ræðir sá fyrri um
einstaklinginn og alheiminn, samkvæmt ríkjandi fræði-
kenningum í vísindum og heimspeki, og er þar reynt að
sýna fram á, að þessar kenningar sö ekki fullnægar til
að skýra einstaklingseðlið eða rás þróunarinnar. Síðari
parturinn byggir því næst þar upp, sem sá fyrri hefir rif-
ið niður, og setur fram skoðanir höf. á þessum hlutum.
Er öll bókin reyndar vel rituð, en þó þykir mér fyrri
parturinn skara fram úr að skarpleik hugsunarinnar og
rökfestu.
Höf. byrjar cá því að sýna fram á, að kinar viður-
kendu orsakir, eftirlögun og náttúruval, sé ekki nægjan-
legar til að skýra myndun nýrra tegunda, uppruna eðlis-
hvatanna, stökkbreytni, sem skapar nýjar tegundir, né
hina snöggu og langvinnu festingu (»crystallisation«) á
aðaleinkennum nýrra tegunda og nýrra eðlishvata. Tek-
ur hann síðan skordýrin til dæmis og bendir á, að hinar
undursamlegu breytingar þeirra sanni, að aðalorsök þró-
unarinnar sé hvorki áhrif umhverfísins, né svar lífræns
efnis við þeim áhrifura, heldur »aflfæri« (dynamism), orku-