Morgunn - 01.06.1922, Blaðsíða 24
18
MO RðUNN
Mikuska og Starcke. Man eg að hlegið var dátt, er
Mikuaka lýsti yíir því, að lifeðliafræðin nýja byrjaði þar
fyrst, er Starcke hætti
Þá flutti svissneski læknirinn C. Magnin erindi um
andlegar lækningar og sagði frá ýmsum dæmum, þar sem
menn, er vanalegir læknar hefðu talið ólæknandi, hefðu
verið læknaðir með andlegum lækningum. Skoraði hann
á lækna að lítilsvirða ekki þessar nýju aðferðir, þó að
þær væru ef til vill nefndar spíritismi. Þótt þær væru
kallaðar dulrænar nú, mundu þær verða taldar vísinda
legar innan skamms.
Á kvöldfundinum fluttu þau erindi og sýndu skugga-
myndir: hinn kunni sálarrannsóknamaður S. Younciétch
frá Rússlandi, sem býr í París (um rannsóknir sínar á
ýmsum miðlum, t. d. Evsapiu Paladino) og ungfrú Felicia
R. Scatcherd frá London (um hugsanamyndir, myrkur-
myndir (skotographs) og ljóstnyndir af framliðnum mönn-
um). Bæði hafa þau mjög mikla reynsluþekking á mál-
inu. Ungfrú Scatcherd hefir lengi gert tilraunir með ljós-
mynda-miðlana í Crewe, sem mjög eru kunnir orðnir.
Hún var ein þeirra, er tilraunirnar gerði með W. T. Stead
í Júlíu-fikrifstofunni; hún var og handgengin Sir William
Crookes.
Miðvikudag 31. ágúst flutti dr. med. J. Zeehandelaar frá
Hollandi erindi, erhannnefndi: Hugsanaflutningureða spírit-
ismus. Einn af vinum hans, hollenzkur bankastjóri, hafði
mist konu sína suður i Afriku Ilún hafði heitið honum
því devjandi, að reyna að senda honum skeyti að hand-
an, ef unt væri. Hann hafði farið til Englands og fengið
mjög merkileg skeyti hjá ýmsum miðlum á Englandi. Alt
var skrifað upp jafnóðum. Bæði bankastjórinn og lækn-
irinn Iitu svo á, að svo margs konar þekking hefði kom-
ið fram í skeytunum, að hún yrði aðeins skýrð á tvo
vegu: annaðhvort hefði miðillinn þetta frá hinni fram-
liðnu konu eða hann sækti það i undirvitund bankastjór-
ans, Mætti þá skýra það sem hugsanaflutning. Á þá sveif-