Morgunn - 01.06.1922, Blaðsíða 49
MOEGUNNN
43
tnikið innvortis, áður en hún fór yfir um. Hún dó mjög
fljótlega, og áður en hún eða aðrir bjuggust við.
»IIin konan er ung, hærri, grennri, með lengri háls,
lagleg. Hún nefnir eldri konuna móður sina«.
Nú reynir Mrs. Brittain að koma með nafn. Hún stag-
ast á »Mar«, »Mary«, en nær eltki nafninu. Hún segist
vera að reyna að ná nafninu á ungu konunni. »Hún hefir
tvö nöfn. Hún dó eftir barnsburðc.
Hún segir, að unga konan skifti hárinu i hliðinni.
»Ungbarn, drengur, er með nenni. Annar drengur er
líka með henni, miklu stærri«.
Eg spyr, hvort hann sje mjög miklu stærri.
Mrs. B.: »Mér sýnist hann vera fullorðinn. Hún fór
yfir hafið. Hún segir mér, að hún hafi hitt vin yðar,
sem druknaði. Hann er hrokkinhærður. Fallegt enni,
beint nef, laglegur. Hárinu er skift, og það er langt, lík-
ist listamannshári. Hún segist hafa þekt hann í jarðlif-
inu. Fremur sterklega vaxinn, en ekki feitur. Hver er
Eðvarð? Það er þessi vinur yðar.
»Einhver árlegur minningardagur í sambandi við hana
er nú, eða nálægt þessum tíma. Annaðhvort er það af-
mælisdagur eða dánardægur einhvers*.
Mrs. B. reynir að koma með nafnið á ungu konunni.
Hún segir, að sér heyrist það mjög líkt þvi, sem það sé
Matilda. »En hún heitir öðru nafni líka; það er styttra,
ekki nema þrír eða fjórir stafir, en eg næ því ekki. Þrjú
börn eru með henni, alt drengir, og einn þeirra er full-
orðinn.
»Karl eða Charles er skyldur henni«.
Því næst segist Mrs. B. ætla að reyna að koma með nafn-
ið á einum drengjanna. »Sig — Sigurður«, segir hún.
Henni veitir nokkuð örðugt að bera það fram, en að lok-
um kemur það alveg greinílega »Nafnið annars hins
•drengsins byrjar á M.
»Það er eitthvað um bolla af tei«, segir hún þá.
Eg spyr hana, hvort hún viti með vissu, að það sé te.