Morgunn


Morgunn - 01.06.1922, Blaðsíða 46

Morgunn - 01.06.1922, Blaðsíða 46
40 MORGUNN Hjá miðlum á Englandi. Eg dvaldist á Englandi nálægt mánaðartíma á síðast- liðnu hausti. Meðan eg stóð þar við, sætti eg færi að komast á þrjá tilraunafundi, sem allir voru merkilegir, hver með sínum hætti. Auk þess kom eg á tvo fjölmenna fundi, þar sem skygnilýsingar fóru fram; um þá get eg ekki borið af eigin þekkingu, þvi að engum var lýst, sem sagt væri að stæði í neinu sambandi við mig. En á báð- um fundunum kváðust margir kannast við lýsingarnar, einkum samt á öðrum þeirra. Á þeim fundi var Mr. Peters skygnimiðilliim. Eg hefði leitað til fieiri miðla, ef eg hefði ekki haft miklu öðru að sinna, sem að sjálfsögðu varð að ganga fyrir. Fyrst kom eg til hinna nafnfrægu ljósmyndamiðla i Crewe, Mr. Hope og Mrs. Buxton. Hvorugt þeirra hefir það að atvinnu sinni að taka ljósmyndir. Mr. Hope er óbreyttur og mjög alþýðumannslegur verkamaður, en víst prýðisvel greindur, og þau taka þessar kynjamyndir í hjáverkum. Bæði eru þau ástúðleg í viðmóti, trúmenn og mjög bænrækin. Mr. Plope er Hjálpræðishermaður, en frú- in heyrir til biskupakirkjunni. Gunnar sonur minn var með mér. Við komum með plötur, sem við höfðum keypt um morguninn í Manchester. Viö rannsökuðum alt vand- lega, ljósmyndavélina, baktjaldið o. s. frv. Gunnar lét plöturnar inn í myndavólina, og tók þær út úr henni og framkallaði myndirnar. Við sátum fyrir fjórum sinnum, sumpart saman, sumpart sinn í hvoru lagi. Á eina plöt- una kom mynd af karlmannsandliti, sem ekki var sýni- legt þar í stofunni. Því miður þektum við ekki andlitið, og ekki hefir heldur neinn þekt það, þeirra er hafa séð það síðan. En óneitanlega er það merkilegt að fá myndir af mönnum, sem ekki eru sýnilega viðstaddir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.