Morgunn - 01.06.1922, Page 62
56
MOBGUNN
Skýringar-viðbót við fyrri útgáfur af „Raymond".
Eg ætla mér að nota það tækifæri, sem 10. útgáfa
og síðari útgáfur bókarinnnar veita mér, til þess að koma
með stutta skýringu. Vera má, að með henni kunni mér
að takast að svara sumum af þeim mótbárum, sem komið
hafa frá hinuru sanngjarnari hluta ritdómaranna — þeim
ritdómurum, sem eru fúsir á að verja nokkurum tíma og
nokkurri athygli til þess að lesa bók í því skyni að
komast í skilning um, hvað þar er í raun og veru sagt.
Aðaltilgangur bókar eins og þessarar er sá, að hjálpa
til þess að flytja syrgjandi mönnum huggun, einkum þeim,
sem hafa orðið fyrír ástvinamissi í ófriðnum. Eg mæli
alls ekki með því, að alls konar menn fari til miðla, eða
reyni sjálflr að rannsaka þetta mál. Geri þeir það, verða
þeir að taka á sig ábyrgðina sjálfir. Þegar heilbrigðir
menn þrá, af skynsamlegum og góðum hvötum og með
sanngirni, að fá einhverja reynslu sjálfir af þessu máli, í
þeirri von að draga með þeim hætti úr sorg sinni, þá er
lagt kapp á það af sumum mönnum að hjálpa þeim; en
óhyggilegt er að taka á sig þá ábyrgð að ýta fast undir
það, að sú stefna sé tekin. Og sumum ætti að ráða frá
því. En hvað sem því iíður, heflr allmörgum sorgbitnum
mönnum verið hjálpað; meðal þeirra eru margir, sem
ekki hafa vitað neitt um málið áður. Raunamæddir menn
hafa farið, með nákvæmum leiðbeiningum, til mikils met-
inna miðla, hafa alls ekki látið nafna sinna getið, og hafa
fengið samband, sem ekki verður á vilst, við framliðna
ástvini sína. Þetta heíir oft koraið fyrir, og stundum með
sérstaklega eftirtektarverðum hætti Árangurinn heiir orð-
ið allmikil viðbót við hið mikla, samansafnaða magn
sannana fyrir því að fyrirbrigðið gerist i raun og veru,
og stundurn fyrir gáfum miðla, sem í venjulegu ástandi
vissu alls ekkert um gesti sína, en komu í sambands-
ástandinu (trancinum) ineð mörg atriði, sem lýstu ná-
kvæmri þekking á skyldraennum gestanna. Það nær ekki