Morgunn


Morgunn - 01.06.1922, Page 73

Morgunn - 01.06.1922, Page 73
M 0 R G TJ N N 67 Samúels eftir þennan vígsludag. Einu segir biblían þó frá. Mamma hans var vön að gera honum lítinn möttul og færa honum á ári hverju, þegar hún fékk að fara með manni sínum, til þess að færa hina árlegu fórn við helgidóminn. Sá möttull hefir vafalaust verið vandlega gerður. Heitar tilíinningar og hlýjar hugsanir hafa ofið ósýnilegan ástúðarhjúp utan um hann, svo að hann hefir verið margföld skikkja, og lík- lega þes8 vegna undursamleg hlíf gegn öllu illu; stundum ef til vill stöktur hinu helgasta vígsluvatni: saknaðartár- um löngunarfullrar móður. Hve hún hefir hlakkað tilað færa honum gjöfina. Hvílík hátíð að koma til helgidóms- ins og fá að sjá drenginn sinn einu sinni á ári. Þið munið, hvernig litli drengurinn hennar reyndist þar við helgidóminn: »En sveinninn Samúel óx og þroskaðist og varð æ þekkari bæði guði og mönnum*. Ætli hún hafi ekki snúið heim hvert sinn glaðari en hún kom og enn þakk- látari og sagt við sjálfa sig eitthvað á þesaa leið: »Ekki skal mig iðra þess, að eg léði hann guði; að vísu sit eg oft ein heiraa; margt tárið felli eg út af þvi, að hafa hann ekki hjá mér; en eg sé, að hann ætlar að verða góður drengur, og það borgar alt«. I dag er Hanna ykkur ímynd foreldra ykkar. Mæð- ur ykkar hafa líka oft hugsað eins og Hanna. Aður en þið fæddust, voru þær farnar að biðja guð fyrir ykkur. Foreldrar ykkar þráðu það iika snemma að helga líf ykkar guði. Fyril' því voruð þið þegar á fyrsta ári bornir að hinni heilögu laug skírnarinnar. Fyrir þessa sömu sök höfum við foreldrarnir látið okkur ant um, að þið væruð fræddir í þeirri trú, sem þið voruð skírðir til, svo að þið mættuð halda ykkur við Krist, eins og þið fyrir skírnina voruð gróðursettir á honum. Eins og þið vitið sjálfir bezt, hefi eg fyrst og fremst gert mér far um að fræða ykkur um hann og útskýra kenning hans fyrir ykkur. Eg hefi reynt að uppmála líf hans fyrir ykkur, alt frá jötunni i Betle- hem og til þess er hann dó á Golgata — nei, lengur; eg . 5*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.