Kylfingur - 01.05.2004, Side 10
Ávarpforseta GSÍ,
Júlíusar Rafnssonar,
í tilefni 70 ára afmælis GR
Það er mér sönn ánægja að óskafélögum og stjómendum Goljklúbbs Reykjavíkur til hamingju á
þessum tímamótum, þegar klúbburinn heldur upp á að liðin eru sjötíu árfrá stofnun tians.
Fyrstu heimildir um golf á íslandi erufrá 1912. Þá um sumarið var heimilisfólkið á Halldórs-
stöðum í Laxárdal í S.-Þingeyjarsýslu við heyskap og rak augun í litlar hvítar kúlur sem komu í
Ijánna. Voru menn mjög undrandi ífyrstu þar til einhver mundi eftir því aðfyrr um sumarið
hafði Englendingur, Forder að nafni, verið á þessum slóðum, líklega við laxveiði. Hann hafði haft
með sér golfkúlur og einliver „annarleg“ prik sem hann notaði til að berja kúlumar með á bökkum
Laxár. Ekki eru til eldri tieimildir um golf hérlendis svo vitað sé og raunar eru litlar sem engar
heimildir á reiðum höndum um neitt tengt íþróttinni þar tilfyrsti íslenski golfklúbburinn,
Golfklúbbur íslands, síðar Golfklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður 14. desember 1934. Við lestur
sögu golfs á íslandi kemur í tjós aðdáunarverðframsýnifrumkvöðlanna og áræðni við allt skipulag,
bœði við uppbyggingu valla og félagsstörf. Hugmyndir tiafa þeir sótt bœði til Svíþjóðar og
Danmerkur og þaðan tiafa þeirfengið meðat annarsfyrstu golfkennarana.
Elcki verður þetta ávarp skrifað svo að ekki verði minnst á helstu forgöngumenn golfklúbbsins en
það voru lœknamir Gunritaugur Einarsson og Valtýr Albertsson, sem hugðust m.a. bœta tieilsufar
manna með stofnun goljklúbbs og auka þar með útiveru semjlestra. Þá er rétt að nefna nafn Sveins
Bjömssonar, þá sendiherra íslands í Danmörku, og síðar fyrsta forseta íslands, en hann var á
þessum tíma talinn eini íslendingurinn sem spilaði golf að staðaldri. Sveinn kom við sögu bæði á
undirbúningsfundi og einnig stofnfundi Goljklúbbs íslands. Fmmkvöðlamir sýndu ótrúlega
framsýni á öllum sviðum. Ári eftir stofnun G.í. hófu þeir útgáfu tímarits um golfsem bar heitið
„KYLFINGURRitið var í upphafi félagsblað golfklúbbsins enjljótlega eftir stofnun Golfsambands
íslands varð blaðið aðalmálgagn hreyfingarinnar í landinu og varþað í nokkra áratugi. Saga
Goljklúbbs íslands og Golfsambands íslands eru nátengdar enda komu við sögu sömu fmmkvöðlar
við stofnun G.S.Í. og G.í. og er Ijóst við lestur sögunnar að forustumenn G.í. liafa verið driffjaðrir í
öUu golfi á landinu á þessum upphafs árum.
Fyrir hönd íslenskra kylfinga og stjórnar Golfsambands íslands, færi ég Goljklúbbi Reykjavíkur
og öUum Reykvíkingum bestu lmmingjuóskir í tilefni þessara tímamóta og þakka forystumönnum
Golfklúbbs Reykjavíkur fyrir góð samskipti við G.S.Í. tí liðnum áratugum.
S K\'LFINGUlt