Kylfingur - 01.05.2004, Side 13
Frá vígslu golfvallarins í Laugar-
dalnum 12. mai 1935. Á myndinni eru
félagar í klúbbnum og gestir þeirra.
Aftasta röðfrá vinstri: Kristinn
Maikusson, Johann Rönning, Bergur
G. Gislason, Friðþjófur O. Johnson,
Kristján G. Gislason, Karl Jónasson,
Magnús Andrésson, Gottfreð Bern-
höft, Daníel Fjeldsted, Valur Norðdal
(veitingamaður), Sigurður Jónsson,
Asgeir Ólafsson, Ólafur Gíslason,
Valtýr Albertsson, Sveinn Valfells,
Guðmundur Ásbjömsson, Haraldur
Amason, Hallgrímur Fr. Hallgríms-
son og Einar Pétursson. Miðröð frá
vinstri: Ingibjörg Gíslason, Friðbjöm
Aðalsteinsson, Gunnar Guðjónsson,
Gunnlaugur Einarsson, Gourley frá
Lever Brothers, sem gáfu íslands-
meistarabikarinn, Sigurður B.
Sigurðsson, Helgi Hennann Eiríksson
og Unnur Pétursdóttir.
Fremsta röðfrá vinstri: ÓlöfMöller
Andrésson, Jóhanna María Bernhöjt,
Guðmunda Kvaran, Unnur Magnús-
dóttir, Anna Kristjánsdóttii; Kristrún
Bemhöft, Karitas Sigurðsson, Helga
Valfells og Ágústa Jolmson.
Gunnlaugur og Valtýr létu ekki standa við orðin tóm heldur höfðu samband við nokkra
einstaklinga sem þeir vissu að höfðu leikið golf og aðra sem ekki höfðu leikið golf, með það
í huga að stofna golfklúbb. Undirbúningsfundur var haldinn á Hótel Borg 30. nóvember
1934. Á fundinum var samþykkt að stofna golfklúbb og undirbúningsnefnd falið að undir-
búa lög og reglur. Jafnframt var ákveðið að ráða útlendan kennara, Walter Arneson, til að
kenna meðlimum hins nýja golfklúbbs. Þessi ráðning á kennara hefur sjálfsagt gert það að
verkum að golfklúbburinn lognaðist ekki útaf strax á fyrstu árum þar sem mjög fáir Islend-
ingar höfðu leikið golf og þeir hinir sömu voru í fullu starfi og þar með takmarkaður áhugi
eða tími til að kenna öðrum.
Golfklúbbur íslands
Undirbúningsnefndin boðaði til stofnfundar 14. desember 1934 í Oddfellowhöllinni. Þessi
sögulegi fundur hófst með að Sveinn Bjömsson sendiherra flutti erindi um golf. Samþykkt
var á stofnfundinum að klúbburinn ætti að heita Golfklúbbur íslands. í fyrstu stjórn vom
kosnir: Gunnlaugur Einarsson læknir, formaður, Gunnar Guðjónsson skipamiðlari, ritari,
Gottfred Bemhöft sölustjóri, gjaldkeri, Valtýr Albertsson læknir, Eyjólfur Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri, Guðmundur Hlíðdal landsímastjóri og Helgi H. Eiríksson skólastjóri, með-
stjómendur. Stofnendur Golfklúbbs íslands em skráðir 57. Það em þeir félagar sem skráðu
sig í klúbbinn á árinu 1934 og til 7. janúar 1935.
Hendur vom látnar standa fram úr ermum og kennarinn Walter Ameson, sem gekk dag-
lega undir nafninu Wally, kom til landsins 12. janúar 1935 og hóf samstundis kennslu inn-
anhúss. Var hann hér við kennslu til 4. aprfl er hann hélt af landi brott og lofaði að koma aft-
ur um sumarið. Á þeim tæplega þremur mánuðum sem Ameson kenndi hér á landi komu 40
tilvonandi kylfingar til að fá leiðsögn hjá honum.
Næst var að útvega land fyrir golfvöll. Stjóminni leist ágætlega á land sem nefnt var Aust-
urhlíðarland og var í Laugardalnum. Var um að ræða 6 hektara tún með sumarbústað sem
hægt var að fá leigt. Ljóst var að þama gæti aðeins risið sex holu völlur svo leigt var til eins
árs. 12. maí 1935 var völlurinn vígður og klúbbhús opnað til almennra afnota fyrir félags-
menn
Tjaldað til einnar nœtur
I ræðu sinni merkisdaginn 12. maí 1935 sagði Gunnlaugur Einarsson, formaður klúbbs-
ins, meðal annars: „Saga Golfklúbbs Islands er ekki löng en hún er með þeim sérkennum að
allar vonir hans hafa ræst fyrr en djörfustu idealistamir í stjóminni þorðu að dagsetja þær.
Þetta er því að þakka að klúbburinn hefir strax orðið óskabam fjölda góðra manna og náð al-
mennri hylli...“. Á öðmm stað segir Gunnlaugur: „í stað þess að hafa golfvöll, sem rúmar 18
holur, höfum við golfvöll, sem er aðeins 6 hektarar að stærð og rúmar aðeins 6 holur. Og í
stað þess að klúbburinn eigi völlinn sjálfur, emm við hér leiguliðar til eins árs og borgum
2500 kr. fyrir. Hér er því tjaldað til einnar nætur...“
Golfvöllurinn í Laugardalnum var betri en enginn golfvöllur. Sumir stofnenda klúbbsins
vom að vísu vanir stórum og miklum völlum í Danmörku, Skotlandi og Svíþjóð og vissu
KYLFINGUR 11