Kylfingur - 01.05.2004, Page 24

Kylfingur - 01.05.2004, Page 24
samþykkja að láta GR hafa 40 hektara land í Grafarholti. Helsta eign klúbbsins var golfskál- inn í Öskjuhlíðinni og þegar samningar um Grafarholtslandið voru komnir vel á veg bauð bærinn klúbbnum 600.000 kr. fyrir skálann og 100.000 kr. í styrk til golfvallargerðar. Þar sem samningurinn var samþykktur eftir aðalfund 1958 var boðað til auka aðalfundar 12. júní 1958 þar sem þetta tilboð var lagt fyrir fundinn. Milli fundanna gerðist það að for- maður GR, Þorvaldur Ásgeirsson, sagði af sér vegna ágreinings við kappleikjanefnd. Hafði því varaformaður, Ragnheiður Guðmundsdóttir, tekið við formennsku, en hún hafði reynst mjög vel í samningalotunni við bæjarstjóm, enda fyrrum bæjarstjómarmaður. Þorvaldur varð síðan aftur formaður 1963 og gegndi embættinu til 1966. Ragnheiður var einróma kosin for- maður á aukaaðalfundinum og samningurinn við Reykjavík einnig einróma samþykktur. Ragnheiður varð þarna fyrsta konan til þess að verða formaður golfklúbbs á íslandi og senni- lega ein af þeirn fyrstu í heiminum til þess að gegna slíkri stöðu í því karlavígi sem golfí- þróttin var. Ragnheiður var kjörin heiðursfélagi GR á aðalfundi árið 2001. Sambýli kylfinga og barna Ekki var hætt að nota Öskjuhlíðarvöllinn næstu árin þó komið væri loforð fyrir landi í Grafarholtinu, enda kom í ljós þegar byrjað var að ryðja fyrir brautum í Grafarholtinu að langt var í land með að skapa leikhæfan völl og fékk GR afnot af vellinum í Öskjuhlíðinni lengur en samið hafði verið um. En segja má að í lokin hafi byggingaryfirvöld bæjarins ver- ið farin að ókyrrast þar sem á vellinum og landinu umhverfis var gert ráð fyrir stórri íbúðar- byggð, þjónustustöðum og vegalagningu. Áður en yfir lauk hafði bærinn tekið hluta af golf- skálanum til sinna afnota enda þegar orðinn eigandi skálans. Vai' þar rekin æskulýðsstarf- semi. Ekki er heldur hægt að segja að farið hafi vel um kylfmga á Öskjuhlíðarvellinum síðustu árin. Reykjavík hafði þanist út og golfvöllurinn dró að sér böm að leik. í skýrslu sinni á að- alfundi GR árið 1959 segir Ragnheiður Guðmundsdóttir formaður: „....völlurinn hafi vart verið í leikhæfu ástandi um nokkurt skeið, þar sem hann hefur öðrurn þræði verið barnaleik- völlur með öllunr þeim óþægindum fyrir okkur og ekki síður hættu fyrir bömin, sem það tví- býli hefur haft í för með sér.“ Þetta sambýli og önnur óþægindi þurfti GR að sætta sig við til ársins 1963 að farið var að leika í Grafarholtinu. Við skulum láta Halldór Hansen lækni, einn þekktasta félaga Golfklúbbs Reykjavíkur á fyrstu árunum og fyrsta einherja íslands, hafa síðasta orðið í kaflanunr um Öskjuhlíðarárin. Þessi orð mælti hann á fimmtán ára afmæli klúbbsins árið 1949: „Golfklúbbur Reykjavíkur er nú að komast af gelgjuskeiðinu, hann hefur verið efnilegur og bráðþroska unglingur. Hann þarf þó að stækka úr níu holum í átján holur og meðlimum að fjölga, svo telja megi þá í þús- undum í stað hundruða“. -HK i r\j s\i Elsta golfmótið Elsta golfmótið sem enn er haldið í dag í dag er Bændaglíma Golf- klúbbs Reykjavíkur. Fyrsta bændaglíman var háð 20. október 1935 og hefur hún verið haldin árlega síðan og er lokamót klúbbsins. ( boðsbréfi sem meðlimir í Golfklúbbi íslands fengu sent segir meðal annars: „Fyrir- komulag keppninnar er að stjórn klúbbsins hefur kosið tvo foringja, brautryðj- endur fþróttarinnar hér á landi, læknana Gunnlaug Einarsson og Valtý Albertsson. Peir skipta síðan milli sín öllum þeim félagsmönnum sem eitthvað hafa leikið golf og raða þeim saman. Er því hér um einhverskonar bændaglímu í golfi að ræða...." ( umsögn um mótið í Kylfingi segir: „Var barist hart af kappi miklu, með blóti og broa, frá kl. 10 að morgni til 5 að kvöldi og mátti ekki á milli sjá. Gaf þar að líta stór högg og snarpar sveiflur og hlífði enginn vopnum né verjum. Lauk orrustunni svo að hvorugur sigraði í það sinn....“ Sérreglur fyrir golfuöllinn að Uöllum í Skagafirði Sú einkennilega ákvörðun var tekin af Golfsambandi íslands árið 1944 að búa til 9 holu golfvöll í landareign Valla í Skagafirði og halda þar Landsmót. Landið var aðalbithagi jarðarinnar svo ýmislegt varð að taka með í reikninginn við gerð sérreglna. ( þeim segir meðal annars: Ef bolti fellur í tað eða mykju á vellinum má taka hann upp og láta hann falla skv. St. Andrews golfreglum. Ef bolti grefst í sand má sópa sandinum af efri helming hans áður en hann er sleginn: Á 7. og 8. braut má hreyfa bolta, er fellur og grefst í mýri. Af þessu má sjá að ekki var um venjulegan golfvöll að ræða. Eins og áður sagði var þetta aðalbithagi jarðarinnar og segir í Kylfingi að kýrnar hafi verið einkum áhugasamir áhorfendur og virtist sem þeim þætti mikið til koma hinna fögru og litskrúðugu flatarflagga og við bar að þær skyldu eftir hvimleiðar menjar um komu sína. FORMENN FRA 14. DESEMBER 1934 1934-1944 Cunnlaugur Einarsson 1945-1948 Hallgrímur Fr. Hallgrímsson 1949-1954 Ólafur Císlason 1955 Hörður Ólafsson 1956-1958 Porvaldur Ásgeirsson 1958 Ragnheiður Guðmundsdóttir 1959-1961 Helgi H. Eíríksson 1962 Cuðlaugur Cuðjónsson 1963-1966 Þorvaldur Ásgeirsson 1967-1969 Ólafur Bjarki Ragnarsson 1970-1972 Svan Fríðgeirsson 1973-1974 Cuðmundur S. Cuðmundsson 1975 Cyða Jóhannsdóttir 1976 Svan Friðgeirsson 1977-1978 AríF. Cuðmundsson 1979-1980 Magnús R. Jónsson 1981-1982 Svan Friðgeirsson 1983-1985 Karl Jóhannsson 1986-1989 Hannes Cuðmundsson 1990-1992 Cuðmundur Björnsson 1993-1998 CarðarEyland 1999- Cestur Jónsson 22 KYLFINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.