Kylfingur - 01.05.2004, Síða 34
á haustin og byrja fyrr á vorin. Við sem vorum í stjóm fengum oft að heyra þetta. Það var
svo árið 1971 að við Olafur Þorsteinsson og Guðmundur Ófeigsson, sem vom í stjóm með
mér, örkuðum alla strandlengjuna frá Kollafirði og út að Álftanesi í leit að hentugu svæði til
að leika vetrargolf og niðurstaðan var Korpúlfsstaðir. Vorum við sammála um að það svæði
bæri af. Við fómm á fund borgaryfirvalda til að fá leyfi til að vera þar til bráðabirgða. Við
fengum leyfið eftir nokkurt þóf enda margir borgarstarfsmenn á móti að GR fengi afnot af
landinu. En við áttum einnig hauka í homi, menn eins og Birgi ísleif Gunnars-
son, borgarstjóra, sem tók vel í málaleitun okkar.....“
Þannig hefst næsti kafli í sögu Golfklúbbs Reykjavíkur þegar skrifað er um
golfvelli klúbbsins. Langur tími mikilla sviptinga um Korpúlfstaðalandið fór
nú í hönd og þeim lauk ekki fyrr en glæsilegt landsmót var haldið á nýjum 18
holu velli á Korpúlfsstöðum árið 1997.
Starfið hélt áfram í Grafarholtinu. Myndarlegt klúbbhús var risið og völlur-
inn ætíð í gagngerri endurskoðun. Vökvunarkerfi er sett á allan völlinn 1989 og
breskur golfvallahönnuður, Howard Swan, var fenginn til að gera breytingar á
vellinum í samstarfi við vallamefnd og framkvæmdastjóra klúbbsins, Margeir
Vilhjálmsson, sem er lærður golfvallafræðingur. Það er ljóst hverjum þeim sem
muna hvemig völlurinn var í árdaga hans að miklar endurbætur hafa verið
gerðar á honum, endurbætur sem gera hann enn meira krefjandi en áður. Ekki
má gleyma fómfúsu starfi margra einstaklinga sem ár eftir ár gróðursettu í
landinu. Þar kom borgin einnig að málinu og Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Hefur borgin lánað unglingavinnuflokk hvert einasta sumar til að viðhalds á
vellinum og til gróðursetningar. Þessi viðleitni áhugamanna um gróður í Graf-
arholtinu er farin að bera árangur eins og sjá má víða á vellinum.
Við látum Jóhann Eyjólfsson, sem gerðist meðlimur í Golfklúbbi Reykja-
víkur 1936 og er enn að leika golf eiga síðustu orðin í þessum kafla, en hann
var í stjóm GR þegar klúbburinn fékk afhent Grafarholtið: „Skilningur bæjar-
yfirvalda var afskaplega lítill í sambandi við golfið á þessum tíma. Okkur var
boðið Grafarholtið og að það skyldi skásti kosturinn sýnir skilningsleysið. Það var bara að
taka þessu þótt landið væri ekki árennilegt. I raun vissum við ekkert hvað við vomm að fara
útí. Við vissum að til voru þungavinnuvélar sem gátu mtt grjóti, en ég held að allir sem einn
hafi ekki gert sér grein fyrir hvað verið var að fara útí með allt þetta grjót í landinu.“ -HK
Ragnhildur Sigurðardóttir er marg-
faldur klúbbmeistari og íslandsmeist-
ari. Hún er hér á 13. teig í Grafar-
holtinu. I baksýn er œskuheimili
Ragnhildar, býlið Grafarholt.
32 KYLFINC.LIK