Kylfingur - 01.05.2004, Side 47
Im
áftW,
A Q 0 r
' 0Sgf
p fl
GRer
á meðal
stærstu
klúbba
Evrópu
Gestur Jónsson
formaður GR í samtali við Kylfing
Lögmaðurinn Gestur Jónsson hefur
verið formaður Golklúbbs Reykjavík-
ur á sjötta ár, tók við taumunum 1998
og hefur stýrt þeim farsællega á miklu
uppbyggingarskeiði félagsins. Hann
kveðst hafa byrjað full seint að stunda
golfið og telur það nokkurn galla á for-
gjöf Njarðar, ef svo má segja; einstakl-
ingar sem hefji leik þegar á unglings-
aldri hafi að jafnaði talsvert forskot á
sæluna sem fylgir því að fara um græn-
ar grundir með kylfur á lofti.
Kviknaði um þrítugt
Golfbaktería Gests kviknaði þegar hann
var um þrítugt. Þá tókst starfsfélaga hans,
Olafi Skúlasyni á Laxalóni, að draga hann
upp í Grafarholtið, en Gestur hafði ekki
mikla trú á því að hann myndi falla fyrir
þessum eltingaleik við hvítar kúlur. Önn-
ur varð raunin og nú segist Gestur vera
jafnt líkamlega sem andlega háður þessari
íþrótt. Að vísu truflaði ómenguð náttúran
hann í fyrstu; í ljós kom að hann hafði
talsvert ofnæmi fyrir grasfrjói og roðnaði
um augu úti á vellinum, en aðlögunar-
hæfni líkamans eru lítil takmörk sett og
ekki saka æ betri lyf sem fást við þessum
alkunna vanda: „Eftir að ég náði að hrista
þetta óþol af mér hefur ekkert getað
stöðvað mig úti á vellinum. Ég reyni að
vera þar flestum stundum sem gefast frá
vinnu og heimilislffi. Og reyndar bý ég
við þau forréttindi að geta tengt saman
heimili og þessa helstu ástríðu mína, en
kona mín, Margrét Geirsdóttir og yngsti
sonur, eru ekki síður heilluð af golfinu en
ég sjálfur.“ Hann segir það einmitt vera
eina af höfuðástæðunum fyrir örum vexti
golfíþróttarinnar hversu auðvelt mönnum
reynist að vera með fjölskyldum sínum
úti á vellinum. Golfið tengi fólk og fjöl-
skyldur, jafnvel betur en flestar aðrar
íþróttagreinar. „Það er því svo á sumrin að
heimili mitt er ekki síður að finna uppi í
Grafarholti en í Silungakvíslinni...“
Keppniselementið...
Hann segir margt hafa gert það að verk-
um að hann féll bókstaflega fyrir golfinu
á sínum tíma; útiveran skipti þar miklu
máli og þá ekki síður samveran við fólk.
„Ég held því fram að fólk kynnist hvert
öðru betur úti á golfvellinum en við önn-
ur skilyrði. Þessi fjögurra tíma ganga á
eftir boltanum kallar fram margt það
besta í samskiptum fólks.“ Þá segir Gest-
ur því ekki að leyna að enn eitt atriðið hafi
skipt hann miklu máli í uppgötvun sinni á
ágætum íþróttarinnar: „Og það er keppn-
iselementið. Mér er sagt að mig vanti ekki
keppnisskapið“. Hann hallar sér værðar-
lega aftur í stólnum á lögmannstofunni
sinni niðri í Mörkinni og vart verður ann-
að ráðið af svip hans en hugurinn hvarfli
upp í Holtið. Hann er hristur upp úr
dagdraumunum með þeiirí eðlu spum-
ingu hvort forgjöfin sé feimnismál.
„Nei, ekki aldeilis," og það stendur
ekki á frekara svari: „Því miður hefur hún
verið á rangri leið á síðustu missemm og
stendur núna í 11. Ég komst lægst í 8,7
fyrir tveimur eða þremur árum. Það er
bara svo mikil vinna fyrir svona karla eins
og mig að halda sér undir 10 í forgjöf. Það
hefur verið sagt að þeir sem em yfir 10 í
forgjöf vanræki golfið, en hinir sem em
undir 10 í forgjöf vanræki vinnuna. Mig
KYLFINGUR 45