Kylfingur - 01.05.2004, Page 64

Kylfingur - 01.05.2004, Page 64
heiður Guðmundsdóttir, sem tók við for- mannsembættinu um tíma. Hún fór í öll mál af miklum krafti. Hún hafði unnið mikið að bæjarmálum og þekkti allt kerf- ið og það var hún sem gerði samninginn við borgina um afnot af landinu til 99 ára með góðri aðstoð Sveins Snorrasonar, lögfræðings, sem var einnig í stjóminni. Það var ýmislegt í ólestri þegar hún tók við klúbbnum. Hún var ekki lengi for- maður en gerði heilntikið gagn. Helgi H. Eiríksson, sem hafði verið for- seti GSI, tók við formennsku af Ragn- heiði. Eg hafði verið í stjórn með Ragn- heiði og hélt áfram með Helga. Dag einn eftir stjórnarfund í frábæru veðri, ætli það hafi ekki verið 1959 eða 1960, sátum við Helgi á kletti rétt fyrir ofan þar sem nú er fyrsti teigur og virtum fyrir okkur völlinn sem byrjað var að móta. Útsýnið var stór- kostlegt og þá fengum við þá hugdettu að á þessu svæði ætti golfskálinn að vera og hvergi annars staðar. Eftir á að hyggja var engin skynsemi á bak við ákvörðun okk- ar. Staðsetja hefði átt skálann nálægt 10. teig. En útsýnið var svo frábært að við lét- um glepjast. Eg er ákaflega montinn af Grafarholts- vellinum. Það stafar ekki síst af því að ekki var stingandi strá í landinu þegar við tókum við því. í dag er þar einn besti og sérstakasti golfvöllur í heiminum. Ég fer ekkert ofan af því. Þeir sem spila völlinn í dag og þekkja ekki söguna geta ekki gert sér grein fyrir því hversu umhorfs var þama. Grjót, urð og mold. Ég hefði viljað koma Grafarholtsvellinum í heimsmeta- bók Guinness þar sem þess væri getið að í Grafarholtinu hefði verið byggður heimsklassagolfvöllur í landi sem á ekki að vera möguleiki á að gera golfvöll. Ég fer með útlendinga á völlinn sem eiga ekki orð til að lýsa hrifningu á honum og trúa mér ekki þegar ég segi þeim hvemig landið var. Golfskálinn var svo saga út af fyrir sig. Við vomm lengi aðeins með að- stöðu í kjallaranum og ég held að ég og fleiri hafi málað húsið þrisvar áður en farið var að nýta það til fulls. Það vantaði allt til alls og þá ekki síst peninga. Mikil breyúng Alltfrá því Olafurfór að spila golffyrir tœpum sextíu árum hejur hann lioift upp á miklar breytingar í golfinu hér á landi. Horft upp á marga félaga sína hveifa af sjónarsviðinu, fylgst með úrfjarska þeirri miklu byltingu sem orðið hejur, samt ekki legið á sínum skoðunum þegar við á. Ahuginn á íþróttinni hefur aldrei dofnað og er hann alltaf jafn spenntur að hefja leik og þó hann sé með þriggja hjóla raf- magnsvagn þá labbar hann yfirleitt með henni: „Ég fer í golf hvem einasta dag ef ég mögulega get, vetur sem sumar. Ef ekki er hægt að leika golf vegna snjóa þá stika ég holumar frá teig að flöt til að fá hreyfmg- una. Rafmagnskerran er til að auðvelda mér og til öryggis. Ég er með hjartaloku sem gerir það að verkum að ég mæðist, en yfirleitt geng ég með kerrunni. Þeir em það góðir þessir þriggja hjóla vagnar að þeir keyra sig sjálfir á gönguhraða. Margir slíkir vagnar eru komnir í umferð og þeim fer fjölgandi. Sem betur fer hefur áhuginn á golfinu aldrei minnkað og er ég alltaf jafn spennt- ur eftir að byrja leik. Golfið er mér lífs- nauðsyn og ég tel mig mjög heppinn að hafa átt möguleika á að kynnast íþróttinni þegar hún var ekki eins mikil almennings- íþrótt og í dag. Svo er það annað mál að það verður að hafa gaman af ef ætlunin er að stunda golfið sér til heilsubótar. Það nægir ekki að hugsa eingöngu um heils- una, ánægjan verður einnig að vera með. Góður vinur minn og spilafélagi, Sveinn Snorrason, sagði eitt sinn við mig; „Óli, hvar væmm við í dag ef ekki væri golfið, líklegast dauðir.“ -HK r L .1,1 >• ' i L ki - 1 1 V I TLÁ . M cirri • *** Lós. %-yjHí ■ v 1- Góðir vinir og spilafélagar. Jóhann Eyjólfsson, Sveinn Snorrason og Ólafur Agúst Ólafsson hafa leikið saman golfí marga áratugi og allir lát- ið málefni golfs á Islandi mikið til sín taka. Allir voru þeir ífremstu röð þeirra kylfinga sem létu drauminn rœtast um að gera í Grafarholtinu golf- völl í lieimsklassa. Myndin er tekin í Grafarholtinu nú í byrjun maí 62 KYLFINGUK
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.