Kylfingur - 01.05.2004, Page 93

Kylfingur - 01.05.2004, Page 93
Þorsteinn Svörfuður Stefánsson rýnir í reglubókina á heimili si'na að Klapparstíg 1 í Reykjavík. hafi verið fjær holu. Ég var kallaður til og þar sem erfitt var að sjá hvor var fjær holunni stikaði ég lengdimar frá holu að bolta. Frakkinn hafði rétt fyrir sér, hann var lengra frá holunni. Hann mátti afturkalla höggið og gerði það. Þetta varð til þess að Frakk- ar unnu leikinn. Hitt tilfellið gerðist á 10. holu. Ég stóð uppi á hæðinni og sé að Frakkinn tekur upp 100 metra hælinn, sem er bannað, og slær inn á flöt. Ég fór til hans og spurði hvort hann hafi tekið upp hælinn. Hann játaði því. Ég sagði sem var að það væri ekki leyfilegt og hann væri þar með búinn að tapa holunni. Daninn sem kominn var til okkar segir þá: „Ég vil ekki vinna holuna á þennan hátt.“ Þetta mátti hann og þar með var afskiptum mínum af þessu at- viki lokið nema ég sagði við Frakkann að það minnsta sem hann gæti gert væri að setja hælinn aftur á sama stað, en það hafði hann ekki gert. Daninn vann svo leikinn á endanum. Danski kapteinninn hafði fylgst með þessu úr fjarlægð og ég sá að hann hafði eitthvað við sinn mann að segja á næsta teig, enda alveg óþarfi að vera gefa eftir þegar þekkingar- og kæruleysi á í hlut. Annað atvik sem mér er minnisstætt gerðist einnig í Grafar- holtinu. Var um að ræða síðasta holl í Landsmóti á síðasta degi. Úlfar Jónsson sló bolta sinn í sandglompu á 1. braut. Var boltinn hægra megin í glompunni. Meðan hann var að huga að boltanum fór kylfusveinninn hans, sem í þessu tilfelli var eiginkona hans, að ná í hrífuna sem var í hinum enda sandglompunnar. I leiðinni rakaði hún spor sem voru í glompunni. Það var kallað á mig þar sem keppendur voru í vafa um hvort kylfusveinn mætti gera þetta. Ég gat sagt þeim að hún hefði mátt gera þetta svo fremi að það hafi verið gert án vitundar leikmannsins og það var raunin, þannig að Úlfar slapp við víti. í dag hefði hann fengið tvö högg í víti þar sem reglunni var breytt að þessu leyti, um síðustu ára- mót. Meira golf Þú hefur verið meira áberandi á golfvellinu í hlutverki dómara Iteldur en spilara. Á ekki aðfara að breyta til ogfara meira út á völl til að spila? „Jú það er kominn tími til að spila meira en ég hef gert og er ég ákveðinn í að svo verði í sumar. Ég fór til Florida í nóvember síðastliðnum til að spila og æfa mig og ætla aftur út í haust. I millitíðinni ætla ég að spila hér heima eins og ég get. Ég verð að sjálfsögðu einnig í dómarastarfinu og hef þegar tekið að mér að dæma í Landsmótinu uppi á Skaga ásamt Hinriki Gunnari Hilmarssyni. Helsta breytingin er að ég mun ekki dæma í ár í Meistaramóti GR eins og ég hef gert undanfarin ár. Ætla að fara og fylgjast í fyrsta sinn með Opna breska mótinu, sem haldið verður á Royal Troon. Það verður örugglega skemmtilegt." Svona í lokin er ágœtt að fá þig til að segja kylfingwn hvað þeim erfyrir bestu þegar kemur að reglum? „Ég vil aðeins benda kylfingum á að golf er ekki dauðans alvara, nema kannski þegar atvinnumaður á í hlut. Golfið er hans lifibrauð. Fyrir aðra er golfið leikur. Það er sjálfsagt að kynna sér reglumar vel þar sem golf er íþrótt sem gerir kröfur til heiðar- leika og réttsýni vegna þess að menn em oft dómarar í eigin máli í golfi. En fyrst og fremst er að hafa gaman af leiknum og njóta þess að hafa tækifæri til að stunda skemmtilega íþrótt og njóta útivemnnar í leiðinni. -HK KYLFINGUR 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.