Kylfingur - 01.05.2004, Page 113
aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur 20. nóvember 2003
keppti fyrir íslands hönd í klúbbameist-
aramóti Evrópu í Tyrklandi fyrr í þessum
mánuði. Sveitin endaði í 19. sæti.
Öldungar
Lovísa Sigurðardóttir varð Islands-
meistari í flokki 65 ára og eldri, með og
án forgjafar.
Unglingar
Islandsmót unglinga í höggleik:
Pétur Freyr Pétursson varð íslands-
meistari drengja í flokki 12-13 ára.
Kristín Rós Kristjánsdóttir varð ís-
landsmeistari stúlkna í flokki 16-18 ára.
Islandsmót unglinga
í holukeppni:
Pétur Freyr Pétursson varð Islands-
meistari drengja í flokki 12-13 ára.
Sigurður Pétur Oddsson varð Islands-
meistari drengja í flokki 14-15 ára.
Stefán Már Stefánsson varð íslands-
meistari drengja í flokki 16-18 ára.
Stigakeppni unglinga:
Pétur Freyr Pétursson varð meistari
drengja í flokki 12-13 ára.
I afreksnefnd sátu Magnús Oddsson,
formaður, og með honum Hildur Haralds-
dóttir, Einar Sigurjónsson, Sveinn Ásgeir
Baldursson og Sigurður Guðjónsson.
Forgjafar- og aganefnd
Eitt mál kom inn á borð nefndarinnar á
þessu starfsári. Nefndin kvað ekki upp úr-
skurð í málinu, heldur vísaði afgreiðslu
þess til afreksnefndar.
í forgjafamefnd eru Stefán Pálsson, for-
maður, Jónas Valtýsson og Guðni Haf-
steinsson.
Störf nefnda
A vegum klúbbsins starfa nokkrar
nefndir sem sinna afmörkuðum þáttum
starfseminnar.
í kvennanefnd sátu Guðrún Axelsdóttir,
formaður, Hrafnhildur Óskarsdóttir, Guð-
laug Sveinsdóttir, Edda Gunnarsdóttir,
Edda Hannesdóttir, Kristbjörg Svein-
bjömsdóttir. í stjóm GR var Vigdís Sverr-
isdóttir tengiliður við kvennanefndina.
Unglinganefnd var undir forystu Sigur-
jóns Á. Ólafssonar, en með honum í
nefndinni vom Gunnar Gunnarsson og
Sigurbjöm Hjaltason og loks Öldunga-
nefnd laut formennsku Ómars Arasonar
en með honum í nefndinni vom Ágúst
Geirsson, Amór Þórhallsson og Reynir
Jónsson.
Húsanefnd var skipuð Ragnheiði Lár-
usdóttur og Stefáni Gunnarssyni.
Allar þessar nefndir störfuðu af þrótti
og skiluðu góðu verki á starfsárinu. Á
vegum nefndanna fer fram mikið og gott
félagsstarf nánast allt árið. Tímans vegna
mun ég ekki rekja einstaka þætti í starfi
nefndanna heldur læt við það sitja hér að
færa því góða fólki sem vann í og með
þessum nefndum kærar þakkir fyrir vel
unnin störf. Formenn nefndanna hafa
tekið saman stuttar skýrslur um starfið á
árinu og ég mun óska þess við formenn-
ina að þeir birti skýrslumar á heimasíðu
klúbbsins þannig að þær verði aðgengi-
legar þeim sem vilja kynna sér nánar starf
nefndanna.
Kappleikir
Kappleikjahald var með hefðbundnu
sniði og síðastliðið sumar. Mótahaldið
hófst þó með fyrra fallinu þar sem ástand
valla var með allra besta móti. Á Korp-
unni var í fyrsta skipti leikið á Toyota
mótaröðinni. Þar léku einnig 196 ungling-
ar á íslandsmóti unglinga í lok júlí. í
meistaramóti GR léku 446 kylfingar og er
það metþátttaka.
GR og Keilir standa saman að samstarfi
við bandaríska aðila um árlegt golfmót
Iceland open sem haldið er í lok júní í
Grafarholti og á Hvaleyrinni. Mótið var
haldið í annað sinn í sumar og vom er-
lendir þátttakendur í þetta skiptið tæplega
tvöhundruð. Mótið þótti takast vel og
þegar er undirbúningur fyrir mót næsta
árs kominn vel á veg. Þetta mótshald skil-
ar klúbbunum ágætum tekjum en stefna
okkar hefur verið sú að taka enga fjár-
Sigun’egarar í Opna GR, Bjöm Steinar Amason og Jóhannes Eiríksson.
KYLFINGUR 111