Barnablaðið - 01.12.1989, Blaðsíða 20
20 BARNABLAÐIÐ
Draumur Árna Óla
Sunnudaginn 10. janúar 1988,
dreymdi Árna Óla, son minn,
draum. Þá var hann fjögurra og
hálfs árs. Þegar hann vaknaði var
draumurinn alveg Ijóslifandi fyrir
honum og svo áhrifaríkur að Árni
Óli var alveg í skýjunum í marga
mánuði. Hann sagði mér að jafn-
vel þó að þetta hafi verið draumur,
þá hafi þetta líka gerst í raunveru-
leikanum. Eftirfarandi er frásögn
Árna Óla:
Mamma og Gaui bróöir voru í
frjálsum íþróttum og pabbi var aö
brasa í bátnum. Karen systir var
aö passa mig inni í gestaherberg-
inu. Karen var sofnuð. í sjónvarp-
inu voru teiknimyndir sem ég var
ad horfa á. Ég var svolítið lasinn,
illt í maganum og fótunum, og var
með augun hálf lokuð.
Þá allt í einu birtist Jesús ásamt
fullt af englum sem höfðu stóra
vængi. Englarnir voru svo margir
að allt húsið fylltist. Þeir voru svo
ánægðir með Jesú, því þeir elsk-
uðu hann svo mikið og sögðu að
hann væri svo góður við alla.
Jesús kom til mín, tók í hönd
mína og sagði mér hvað hann
elskaði mig mikið.
Mamma, hann Jesús elskarmig
rosalega mikið.
Svo sagði hann mér að hann
elskaði Karenu, Gauja, pabba og
Barnablaðinu
barst bréf frá
Vestmannaeyjum
og segir þar frá
merkilegum
draumi:
mömmu einnig mikið. Hann elskar
alla menn því að hann er svo góð-
ur. Svo sögðu englarnir í kór hvað
þeir elskuðu mig mikið, og alla
aðra menn.
Skyndilega fóru allir englarnir
að syngja. Þeir sungu: Elska Jesú
er svo dásamleg. Jesús söng
ekki, en þegar englarnir sungu:
„Svo há ég kemst ekki yfir hana,
svo breið“, þá rétti Jesús út hend-
urnar og gerði bendingar eins og
við gerum í sunnudagaskólanum
þegar við syngjum þetta lag. Allt í
einu fann ég að ég hafði læknast.
Jesús var með gult, svart og
rautt hár, allt blandað saman.
Hann varí hvítum kirtli eins og allir
englarnir. Svo fóru Jesús og engl-
arnir upp í himininn og ég horfði á
eftir þeim.
Þegar Árni Óli vaknaði sagði
hann mér drauminn og spurði svo
hvenær við fengjum að fara upp í
himininn, því þar ættum við líka
heima. Þar er fullt af húsum! Hann
vildi fara þangað strax en ég sagði
honum að við réðum því ekki sjálf.
Guð einn ræður því. Þá sagði
hann:
„Mamma, þegar við förum til
himins skulum við gefa Jesú og
englunum afmælispakka. Getum
við ekki pakkað þeim inn strax“.
Hann var svo spenntur að komast
inn í himininn. Ég starði á hann og
gleymi þessu aldrei.
Árný Heiðarsdóttir
Vestmannaeyjar.