Barnablaðið - 01.12.1989, Page 46
46 BARNABLAÐIÐ
Þegar beinið stóð í kisu
Mig langar að segja ykkur frá því þegar
beinið stóð í hálsinum á henni kisu.
Þetta var stór, hvítur köttur með svarta
rófu. Hann vakti verðskuldaða athygli.
Einu sinni sem oftar er verið var að
sjóða fiskmeti, fékk kisa fiskhaus á disk-
inn sinn. Svo illa vildi til að brjóstbein
festist í hálsi hennar og sat þar fast.
Nú voru góð ráð dýr. Enginn bíll á
bænum og langt til dýralæknis. Svo
þannig varð kisa að vera.
Hún reyndi að nudda hálsinn með
loppunni.
Ég fór að biðja Guð að hjálpa kisu, því í
Biblíunni stendur að Guð hjálpi mönnum
og skepnum,
Um nóttina var hún á ganginum fram-
an við herbergið mitt.
Allt í einu var eins og ég væri vakin. Ég
fór fram til kisu, því mig langaði svo til að
geta hjálpað henni.
Ég tók hana í fangið og opnaði á henni
ginið. Ég sá stóru tennurnar hennar. Það
hefði ekki verið gott ef hún hefði hreyft
sig. Ég bað Jesú að hjálpa mér. Ég talaði
blíðlega við kisu meðan ég náði beininu
út. Hún hreyfði sig ekki. Það var eins og
hún skildi að ég væri að hjálpa henni.
Þetta var virkilegt bænasvar, því kisa
átti svo bágt.
Guð gaf mér kjark til að gera þetta og
ég þakka honum fyrir það.
Auða.