Barnablaðið - 01.12.1989, Qupperneq 51

Barnablaðið - 01.12.1989, Qupperneq 51
BARNABLAÐIÐ 51 sátu þeir þöguiir lengi. Þeir voru í notalegri baðstofunni. — Hugsið ykkur ef Saku hefur... lent í fossinum? Hanski var leiður. — Mér datt það líka í hug, en svo fann ég ný fótspor á brúninni, sagði Petri og andvarpaði. — Ef til vill fór hann upp að flúðun- um fyrir ofan, sagði Hanski. — Hafi hann gert það, skal hann fá fyrir ferðina, að láta okkur ekki vita, sagði Petri ákveðinn. Þegar strákarnir höfðu fengið nægju sína af gufubaðinu, reyndu þeir að finna lausn á ráðgátunni. Eitt- hvað varð til bragðs að taka. Saku gat verið í lífshættu! Fyrir utan næddi kaldur gustur af fjallinu. Það var svartamyrkur og ekk- ert þýddi að halda til leitar fyrr en dag- inn eftir. — Mér finnst eins og Saku hafi verið neyddur í burtu, sagði Pena. — Einhver hefur rænt honuml — Ekki vantar hugmyndaflugið, sagði Hanski reiðilega. — Ég erviss um að hann erlifandi. Eigum við ekki að biðja fyrir honum? Hann þarf ábyggilega á krafti að halda, einmitt nú, sagði Petri varlega. Drengirnir beygðu höfuð sín. Það eina sem heyrðist var snarkið í eldin- um og þeir áttu erfitt með að koma orðum að tilfinningunum sem bærð- ust hið innra. En þeir vissu að Guð heyrir bæn. Og bænin kom beint frá hjartanu. — Jesús, við vitum ekki hvað við eigum að segja. En þú sérð hvernig ástandið er. Viltu hjálpa Saku, þar sem hann er! Og hjálpaðu okkur að finna hann. Jesús, við erum hjálpar- lausir. Þakka þér fyrir að þú getur hjálpað okkur, bað Petri lágum rómi. Svo bjuggust strákarnir til hvíldar. Þegar slökkt hafði verið á olíulugtinni og eldurinn í ofninum var kulnaður, lágu þeir og hlustuðu á gnauðið í vind- inum. Það gekk illa að sofna. Hugsan- irnar snerust allar um atburði dagsins. — Eruð þið sofnaðir? Spurði Pena. — Það gengur ekki, svaraði Petri. — Sammála, sagði Hanski. — Hvað ef Saku er dáinn? Spurningin lá eins og mara í loftinu um stund. Það vildi enginn svara henni. Hanski rauf þögnina og fór að rifja upp hugsanirnar sem fóru um huga hans, þegar hann hélt hann væri að drukkna í fossinum. — Varstu hræddur, spurði Petri varlega. — Já, það var ég, svaraði Hanski. — Þú veist að Biblían kallar dauðann „síðasta óvininn1'. Og maður er hræddur við óvini, er það ekki? Strákarnir játtu því. — En samt var ég alveg rólegur. Hræðslan hvarf þótt ég hentist fram og aftur í fossinum líkt og í rússíbana. Innan í mér var eins og grafarkyrrð. Það er víst það sem við köllum himn- eskan frið, sagði Hanski. — Munið þið að Jesús sagði „minn frið gef ég yður...“ Við þurfum ekki að rembast neitt við einhverjar kúnstir, sagði Petri ákafur. — VonandifærSakuaðreynaþað sama, sagði Pena og geispaði hátt. — Já, nú verðum við að fara að sofa. Það verður erfiður dagur á morgun. Góða nótt, sagði Petri. Úti var hávaðarok og bjarkirnar sveifluðust fram og aftur í vindhviðun- um. En inni í kofanum var hlýtt og friðsælt. Strákarnir voru fljótlega komnir í draumalandið. 8. kafli Smyglaraflokkurinn Saku lagði á minnið hvernig stígur- inn, sem þeir gengu eftir, lá. En það var ekki svo auðvelt að átta sig á kringumstæðum í myrkrinu. En hann vissi að þeir voru á leið upp með ánni og að þeir höfðu þegar farið fram hjá þrem fossum. Einn af fossunum var svo kröftugur að fossdynurinn var líkt og hraðlest á fullri ferð. Það hafði hvesst og vindhviðurnar lömdu andlitið. Það var bara betra, því þá fékk Saku tækifæri til að brjóta kvista og greinar af trjám og runnum án þess að nokkur tæki eftir því. Saku vonaði að vegsummerkin yrðu nógu greinileg til að hægt væri að rekja slóðina eftir þá. Eftir langa leið beygði slóðin frá ár- bakkanum og lá beint upp brekkuna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.