Barnablaðið - 01.12.1989, Blaðsíða 41

Barnablaðið - 01.12.1989, Blaðsíða 41
Það var glampandi sólskin og nýfallinn snjór þakti skólalóðina þegar nemendur 5.JÓ þustu út í frímínútur. Þegar hringt var inn komu þau öll rjóð og sælleg inn úr frímínútunum. Krakkarnir tóku af sér blautar yfirhafnirnar og ekki var laust við að það væri nokkur galsi í þeim eftir margvíslega leiki í snjónum. Við snerum okkur að tveimur hressum stelpum, Árnýju og Ingi- björgu, og fengum þær til að segja okkur frá því hvað bekkurinn hefði verið að gera í málræktarvikunni. Okkar eigið bókasafn — Þaðmásegjaaðþaðséallt- af málræktarátak í Flataskóla, sagði Ingibjörg. — Alvegfráþvííbyrjunskólans höfum við gert ýmislegt skemmti- legt. Við byrjuðum á því að safna bókum. Allir krakkarnir í bekknum komu með bækur að heiman og við röðuðum þeim í stóran skáp sem við erum með í stofunni okk- ar, bætti Árný við. — Svo kom Ari í heimsókn í bekkinn okkar. Hann sér um bóka- safn skólans, sagði Ingibjörg. Hann kenndi okkur að flokka bæk- urnar okkar og búa til alvöru bóka- safn, hélt hún áfram. — Við flokkum bækurnar eftir stafrófsröð og hver býr til lista yfir sínar bækur, sagði Árný til nánari útskýringar. — Síðan bjuggum við til „bóka- orm“. Hann hefur höfuð og langan hala sem búinn er til úr mörgum kringlóttum spjöldum. Ormurinn lengist eftir því sem við lesum fleiri bækur því við skrif- um alltaf á nýtt og nýtt spjald hvaða bók við lásum og merkjum svo í reiti á spjaldinu hvernig okkur fannst bókin: Skemmtileg, leiðin- leg, sæmileg og límum aftan við halann. Rithöfundur í heimsókn — Við vorum svo heppin að fá Kristínu Loftsdóttur, rithöfund, í BARNABLAÐIÐ 41 Árný og Ingibjörg við bókasafnið. heimsókn. Hún skrifaði bókina Fugl íbúri, sagði Ingibjörg. — Það var mjög gaman að fá hana í heimsókn, sagði Árný. Hún fræddi okkur um það hvernig rit- höfundur vinnur. í fyrsta lagi þarf rithöfundurinn að velja sér efni til að skrifa um. Síðan þarf hann að finna nöfn á persónur sögunnar. — Þegar hún var búin að segja okkur það helsta um það hvernig sögur verða til, máttum við spyrja hana, skaut Ingibjörg inní. Okkur langaði að vita ýmislegt, eins og til dæmis hvort hún hefði einhvern ákveðinn stað til vera á þegar hún er að skrifa. Við höfðum nefnilega heyrt að Agata Cristie væri alltaf ofaní baði og borðaði epli þegar hún skrifaði. En Kristín sagði okk- ur að hún hefði engan svona fast- an vana. Hún skrifaði hvar sem væri og notaði hverja stund sem gæfist til að skrifa bókina. — Hún skrifaði í frímínútum, í skólanum og í bílnum á leiðinni í skólann, sagði Árný. Hún varalltaf með bókina í huga. Við vorum dá- lítið undrandi þegar hún sagði okkur að henni hefði þótt svo gam- an að skrifa bókina að hún gaf sér ekki einu sinni tíma til að fara í bíó með vinum sínum. Hún var alltaf að skrifa! Heimsókn í prentsmiðju — Daginn eftir að Kristín heim- sótti okkur fengum við að skoða hvernig bækur eru búnar til. Krist- ín sagði okkur frá því hvernig rit- höfundurinn vinnur bókina áður en hún fer í prentun, síðan fengum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.